Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Gott húsnæði?

Já, ég hlýt að vera þægileg til innbús, alla veganna vill krílið ekkert fara að koma sér í heiminni. Er að spáí að ganga bara með það fram að fermingu...

Fékk æðislegar ullarbleiubuxur með póstinum í gær, pantaðar af ebay! Hrikalega sætar, sendi mynd með til að sanna mál mitt!



Þessi mynd er bráðstolin af síðu seljandans. Svo er slingurinn minn kominn, ég þarf að fara og leysa hann út úr tollinum á mánudaginn. Hlakka ekkert lítið til! Ætli ég bruni ekki beint í ML til að sýna AJ græjuna :þ

Annars, best að geyma eitthvað af malinu, þá hef ég eitthvað að segja næstu daga á meðan ég læt fólk vita af því að ég sé ennþá ólétt :þ

Kær kveðja Harpa bumbulína

þriðjudagur

Isssssss

Nafna mín tók fram úr mér og átti í gærkvöldi. Bíð spennt eftir meiri fréttum. Litla bumbuskottinu er alveg sama þótt það sé búið að eignast leikfélaga... það vill ekkert frekar mæta á svæðið.

Er alveg viss um að Hanna situr í Danaveldi og rembist eins og rjúpan við staurinn... En hún á afmæli í dag þessi elska og var búin að veðja á dreng í dag. 15 tímar til stefnu!

Innilega til hamingju með daginn Hanna mín *knús og kremjur*

mánudagur

Ennþá feitabolla!

hehe :) Ekki það, ég er ekkert að hamast við að koma krílinu út sko! Hef mestar áhyggjur af því að við förum á hausinn, vegna ógurlegrar forðasöfnunar og hreiðurgerðar! Manngarmurinn harðneitar að hleypa mér í búðir svo ég sleppi mér á netinu í staðinn, húrra fyrir netverslunum!

Annars höfum við það fínt, síðasti vinnu dagurinn minn var á þriðjudaginn fyrir viku síðan og ég er sem sé búin að vera að slaka á, njóta þess að vera til og VERSLA! Þurfti sko að raða með mikilli nákvæmni í ísskápinn eftir síðustu bónusferð og maðurinn minn hristi bara hausinn þegar ég heimtaði stærri ísskáp :þ

Allt lítur vel út hjá bumbubúanum, við förum í monitor á morgun, fáum þá að slaka á í lazy-boy í einhvern tíma :) Vorum í skoðun í dag og allt í gúddí fíling.

Hanna má alveg fara að senda hríðarstrauma ef hún vill fá krílið á afmælisdaginn sinn, eru þeir ekki smá tíma að þvælast yfir hafið?

Darri er ótrúlega duglegur í sambandi við þetta allt, vorum búin að segja honum að krílið kæmi í kringum afmælið hennar Elínar systir, sem átti afmæli 18. mars. Þá á föstudeginum (16.) tilkynnti hann ömmu sinni hátíðlega að barnið kæmi á sunnudaginn! Síðan hafa liðið maaaaaargir dagar (sérstaklega þegar maður er ekki nema 4 ára) og honum finnst ráðlagt að gera ráð fyrir skekkjumörkum þegar hann er spurður hvenær krílið kemur "kannski eftir svona (setur 4 fingur á loft) marga daga". Svo vill svo vel til að okkur mæðginunum finnst afskaplega gott að skreppa í sund þessa daganna. Honum til mikillar gleði og mér til slökunar. Hrikalega þægilegt að láta líða úr sér í volgum potti, ekki verra ef hann er með smá nuddi. Mæli með árbæjarlauginni og nuddpottinum þar.

Svo væri ég alveg til í að þær ykkar sem hafið samband við æðri máttarvöld, mynduð segja veðurguðunum að fara að ákveða sig. Það fer hrikalega í vöðvabólguna mína að hafa svona hita/kulda rokkandi veðurfar. Vaknaði í ískulda í morgun og stíf frá mitti og uppí hársvörð. Ekki spurning um að við Darri ætlum í sund eftir leikskóla!

bið að heilsa í bili!

Harpa, með vöðvabólgu og feitabolla!

P.s. svo má þess geta að ég mun reyna að setja nýjustu upplýsingar hingað inn eftir fæðingu. Þ.e. myndir og nánari útlistingar á fæðingunni :)

miðvikudagur

Hætt að vinna vúhú!

Nei, reyndar ekkert vúhú við það, mér dauðleiðist :þ haha! En já síðasti vinnudagurinn minn var í gær. Ætla að leyfa mér að láta mér leiðast í dag, sé svo til hvað ég fer að braska, er að spekúlera í að mála smotterí og hreiðra almennilega um mig :) Jafnvel fá karlinn til þess að hjálpa mér við að færa kommóðuna inní svefnherbergi. (get svo sem gert það sjálf, veit bara að hann vill hjálpa mér). En það er svona beisiklí það eina sem er eftir að gera, jú og setja vögguna saman og búa um, það er mömmu verkefni (er og verður og hún er sjálfskipuð).

Í gær skruppum við á rúntin. Planið var að skreppa í Ólavíu og Óliver og skoða kerru. Lentum í þeirri *skemmtilegu* reynslu á leiðinni að það keyrði Á okkur strætó! Ekkert grín sko! Vorum stopp á beygjuljósi, útá götunni sem sé og ljósin skiptust. Strætóinn keyrði af stað á sínu græna ljósi áður en við náðum að hreinsa gatnamótin og volla, hann keyrði beint á okkur, kyrrstæð! Samt pínu fyndið þar sem við sátum í bílnum, horfðum á strætóinn nálgast og hugsuðum bæði "afhverju stoppar hann ekki, ætlar hann ekki að stoppa, halllllló". Mjög fyndið síðan að ungi maðurinn í aftursætinu gólaði eftir áreksturinn "Biggi Freyr, bílar eru hættulegir", skynseminn uppmáluð alveg!

En höggið var ekkert, við erum öll alheil og hress, bílstjórahliðin er pínu krambúleruð, spegillinn brotinn o.s.frv. Sennilega er þetta meira tjón en við fyrstu sýn, þar sem strætóinn þrýsti á allt svæðið frá frambretti og að afturdekkinu frá grind og upp fyrir glugga. Við erum víst í 100% rétti og fáum þetta því bætt, sem betur fer. Er samt svo glöð yfir því hve höggið var lítið og að engan skyldi saka. Eins er ég þakklát fyrir vitnið, bílstjóran í bílnum sem var samhliða strætónum sem stoppaði og gaf okkur símanúmerið sitt. Á að vera skothelt mál.

Við héldum svo sem leið lá í OO og leist voða vel á einn kerruvagn þar. Skruppum svo í Fjarðarkaup, elska að kaupa ávexti þar. Fórum í sund, sem var bara yndislegt, náðum að láta vöðvabólguna líða úr okkur og nuddstútarnir gerðu mér mjög gott, hef sjaldan verið svona slök í mjöðmunum held ég! Fórum svo heim og elduðum okkur æðislegan kjúklingarétt með graskeri (again ég elska Fjarðarkaup) og átum síðan haug af ferskum ávöxtum í eftirmat, ananas, jarðarber og vínber. Ég er svakalega matarsvöng þessa daganna, langar bara í mat, mat, mat og meiri mat! Ekki nammi, gos eða slíkt, bara grænemti, ávexti, kjöt, fisk og slíkt!

11 dagar í bumbubúan sem ætlar sig hvergi að hreyfa. Er alveg farið að langa að skoða iljarnar á þessu barni, öðruvísi en í gegnum húðina við rifbeinin :þ

Takk í bili, og ég býst við því að nýjar fregnir færist reglulega hingað inn, só stei tjúnd for next eppisód!

Harpa!

sunnudagur

38 vikur!

Hér kemur fyrst mynd sem er tekin þegar við hjónakornin vorum á leiðinni á árshátíð Hornsins, þarna er ég komin rúmar 33 vikur


Hér koma svo myndir "glóðvolgar" 38 vikna bumbumyndir bæði af klæddri og allsberri bumbu, sem í þokkabót er uppfull af tapas! Lof it!



Er uppbókuð þessa daganna, þ.e. mamma vildi fá krílið á föstudag, Elín systir vill fá það í dag, sunnudag, eins er búið að panta 19 og 20, 27 og 5 apríl. Ég hef ekki hugmynd um hvenær krílinu hentar að mæta... En ég hlakka hellings til að hitta það in person, svo ekki sé minnst á hvað ég hlakka til að geta setið almennilega og borðað heila máltíð á innan við klst... Auk þess eru rifbeinin mín orðin virkilega aum og sár... þau skilja ekkert hvað þau hafa unnið til að fá öll þessi spörk...

Annars er ég að fara að vinna núna mánudags og þriðjudagshádegin. Hlakka ekkert lítið til að afgreiða stóra hópinn "minn" á þriðjudag. Svo má krílið bara fara að mæta :)

Fór áðan að borða með skvísunum mínum á tapas og það var æðislegt, þ.e. að hitta þær og mjög gott að borða. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir, en alveg án þess að vera léleg samt. High five þjónninn verður líklegast í minnum hafður... Hann var líka sætur Hrefna!

adios í bili, næstum sprúnkt mamman!

föstudagur

ógó sniðugt!

mánudagur

37 og niðurtalning hafin!

Er ennþá að vinna Hafrún mín :) Mér finnst bara svo gaman í vinnunni minni ;) En ég vinn núna bara 11-18 á mínum vöktum, kvöldin eru orðin of erfið. Vinn núna, miðvikudag og fimmtudag og sennilegast mánudag og þriðjudag í næstu viku, eða bara á meðan heilsan leyfir og krílið tollir innan bumbu!

Á von á gesti (systu) á eftir og læt hana kannski bara taka myndir af mér :) skelli þeim síðan hingað inn. Annars er allt nánast tilbúið fyrir krílið, öll föt hrein og allt í orden. Er að vinna í því að kaupa mér kerruvagn svo ég geti síðan farið að spóka mig down town reykjavík.

Lét pota í mig í dag (mæðraskoðun) og það er allt eins og það á að vera :þ

Meira seinna.