Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Home Alone

Þegar ég vaknaði í morgun, hlakkaði ég til kvöldsins. Er búin að sofa með eindæmum illa alla vikuna, þar sem guttormur grallari er búinn að vera lasinn, með hósta og wiskey rödd. Svo vaknar hann upp við sinn eiginn hósta og vekur mig. Eina nóttina sagði hann mér þessa sögu hér: http://www.barnanet.is/ormagris/?sida=1279 Eníway, þeir félagarnir skruppu í bústað og svo austur í Dalsel og gista þar í nótt. Í allan dag hef ég hlakkað til að soooooffffaaaaaa í nótt og nenni svo ekki í rúmið.

Iss og svei.

Sit í staðin og horfi á ömus þætti í tv, alveg að rotna úr leiðindum :s

Aumingjas ég......

miðvikudagur

Spennan magnast!

Úllala! RockStar í kvöld. Kaus Magna eins og vindurinn í 1 og 1/2 klst í gærkvöldi. Hlakka hrikalega til að sjá þáttinn á eftir. Hvar verður hann?

Darrinn er búinn að liggja heima með wiskey rödd og hósta. Er samt alveg batnað núna. Hann var í læknisleik með mömmu sinni í dag, setti hitamæli undir handakrikan á mér og þóttist lækna mig ;) Ég er ekkert lasin :)

Elska þennan orm svo mikið, litli krúttrassinn minn :) *væmn*

laugardagur

tími á skriftir

Hætt á lö sambýli.

Byrjuð í nýju vinnunni, á nýja veitngastaðnum. Allt virkar voða vel á mig, allt gengur ógurlega vel og bara stuð í vinnunni. Búin að fá 8 hrós á 3 eða svo, egó-ið í swing.

Fór í Ikea í dag. Er að plana hvernig ég eigi að eyða peningunum mínum þegar ég verð rík. Sniðugt, ekki satt? Leyfði ormagrísnum að skemmta sér í Boltalandi á meðan, en var kölluð til að sækja hann. Grísinn gat ekki verið til friðs og beit eina dömu. Ógurlega fer þetta fyrir brjóstið á mér stundum, að hann skuli láta svona. Ekki eins og við séum sláandi, bítandi eða sparkandi í fólk rétt sísvona. Hann hefur afskaplega, afskaplega takmarkaðan aðgang að tölvuleikjum (erum að tala um kannski á 2 MÁNAÐA fresti) þannig að ekki eru það þeir, og við gleymum í 90% tilvika að kveikja á barnatímanum, þar sem það er ekki einu sinni beðið um það! Hvað veldur þessum fjanda?

Annars er ég búin að vera svolítið mikið að spáí umhverfissinnunum. Eins mikið og ég vil ekki stóriðju og þessi hryðjuverk á landinu okkar, þá vil ég MEIRA uppbyggingu landsbyggðarinnar. Og afhverju eru þessir umhverfissinnar ekki frekar að upphugsa plön fyrir landbyggðina til að lifa af, frekar en að trufla vinnandi fólk. Mér finnst þetta óvirðing við þá verktaka sem hafa tekið að sér vinnu þarna.

Þjónn sem er AA maður neitar ekkert að afgreiða áfengi... og Þorgrímur Þráinsson yrði örugglega rekinn ef hann myndi neita að afgreiða tóbak, sem starfsmaður í söluturni.

Landsbyggðin á fullt af möguleikum, það þarf bara að skoða þá og opna. Og alheimsvæðingin ætti að hjálpa frekar en hitt.

Það gerist aftur á ekki með þöngulhausa á víð og dreif, eins og þá sem hálf-tvíbreikkuðu Hellisheiðina og byggja íþróttahús við skóla án þess að í þeim séu búningsklefar. Hver ræður svona fólk í svona vinnu?

Óska hér með eftir stuðning til framboðs :þ

kv Harpa í framboði....