Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Tók meiri bumbumyndir

Þær má skoða hér: http://public.fotki.com/HarpaMagg/31-vika-bumba/

Er komin 31 viku og bara hress og kát :)

Hérna er líka flotta piparkökuhúsið sem við Darri bökuðum fyrir jólin http://www.barnanet.is/myndir/9/5/mynd_YUFHun.jpg

Vantar síðan instant svefnlyf fyrir óþekkan 4 og 1/2 árs dreng. Eitthvað svona sem stöðvar "ég þarf að pissa" x5 og annað í þeim dúr.

Sami 4 og 1/2 árs drengur heyrir alveg í barninu í maganum og stendur fastar en fótunum á því barninu finnist ís, snakk og nammi gott og vilji sko fá svoleiðis. Honum finnst líka mjög sniðug leið til að ná í barnið að klippa bara gat á magan á mér! Alveg eins og í úlfasögunni! Og já. Hann bíður spenntur eftir því að barnið fæðist svo það geti leikið við hann.... Hann gerir sér samt alveg grein fyrir því að það fæðist lítið, það komi til með að gráta fullt og það drekki úr brjóstum sameiginlegrar móður.

Mér finnst hann nokkuð skýr þessi elska :)

kv Harpa