Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

Áfram Þýskaland

Er um það bil að verða að boltabullu. Veit hverjir eru í 8 liða úrslitum á HM (verð samt að venja mig af því að kalla þetta H OG M) og er með spá fyrir framhaldið. Reyndar spáði ég bæði Spánverjum og Áströlum áfram. En af því að ég er frumbyrja í þessum málum þá get ég leyft mér að aðlaga þetta alveg vinstri/hægri eftir því hverjir detta út ;)

Og í þokkabót þá tapa ég ekki (né vinn reyndar) peningum á veðmálum, þar sem ég tek ekki þátt í þeim.

Fór í æðislegt brúðkaup á laugardaginn. Brúðurinn yndisfagra hljóp 100 metrana upp og niður stiga í 3 metra breiðum kjólnum ;) Enda af mikilli íþróttaætt. Hrikalega gaman, fallegt og gott að borða og drekka, þótt ég hafi bara verið í vatninu og kaffinu. Smakkaði þó allt vínið (enda þykist ég vera áhugamanneskja) og líkaði það allt vel. Og svo er ég von of a kænd.... Mér tókst að fá sápuvatn í augað! Var að drífa mig svo við að blása sápukúlur.

Mig er farið að hlakka syndsamlega til að fá útborgað. Ekki þessi mánaðamót, heldur næstu og þar næstu...

ooooo *peningar* koma til Hörpu já já!

kram og knús Harpa.

föstudagur

stuð, stuð, stuð

Er að fara í brúðkaup um helgina og hlakka ekki lítið til. Það er búið að lofa ekta amerískri rjómatertu híhí Verst að það lítur út fyrir að karlinn minn komist ekki með mér, þar sem það er vitlaust að gera í vinnunni hjá honum. Vildi að það væri þannig í minni vinnu líka....

Síðasta helgi var yndisleg. Leikurinn var geggjaður, algjör snillllllld. Svo fékk ég Fúsa-knús um kvöldið og það er eitthvað sem er eins og jólin. Yndislegt og einu sinni á ári, ja eða svona ca. Huge afmæli á Sunnudeginum og ógurlegt fjör.

Það er einhver tilhlökkun í mér. Allt í gangi og þá er svo gaman. Núna erum við að fara að ráðast í sameignina hérna og kallinn uppi er byrjaður að mála stigaganginn. Lööööngu tímabært. Það er samt ansi mikið sem þarf að gera, en þau eru dugnaðarforkar og við líka og því ætlum við að reyna að gera eins mikið sjálf og við getum. Við þurfum að háþrýstiþvo húsið að utan, sem við getum gert sjálf, og svo þurfum við að láta sprungu viðgera það. Það er eitthvað sem við þurfum að kaupa. Svo getum við málað sjálf. Ég veit ekki alveg hvort okkur tekst að saga sjálfum af svölunum, en það þarf sem sé að saga handriðið af og setja nýtt. Tengdapabbi á steinsög sko!

Ég bíð spennt eftir þar næstu viku. Þá byrjar vinnutörninn og ég verð rík múhahaha.

Og ég er uppfull af útlanda greddu. Möguleiki 1 er að fara í 2 vikur til spánar, leigja helst bíl og flakka á milli borga (fljúga til Alicante og keyra svo til Madrid, Barcelona, taka dag í Port Adventura, keyra upp í fjallahéruðinn og liggja líka eitthvað á ströndinni). Taka ormagrísinn með og gista hér og þar, m.a. hjá vinafólki. Möguleiki 2 er að fara í viku borgarferð 2. Skoða söfn, fara á tónleika, leikhús, út að borða osfrv. Vera á hóteli með góðu rúmi...

Svo er bara að skoða þetta vel. Ég þygg með þökkum álit eina lesandans.

Svo vona ég bara að Þjóðverjarnir taki HM! Ekkert blogg fyrr en eftir helgi, að öllum líkindum.

Plan næstu viku er svo: Vinna mánudag og þriðjudag. Miðv og Fim verðum við Darri heima að þrífa... Vinna fös og lau og ætla helst að vera búin að þrífa, þannig að sunnudagurinn verði bara fjölskyldudagur. Langar í pikk nikk útí garð eða eitthvað ;) Ég þarf nefnilega að þrífa fyrir allan júlí mánuð... Því ég verð nánast bara í vinnunum! Og svo verð ég að klára að bónleysa holið. Stofan er geggjuð svona :þ

of mikið af búlshitti. Later.

laugardagur

Ruggandi bátur

Þannig líður mér stundum. Svona óþæginda rugg. Í pælingunum sko. Vagg og velta. Það varð pínu stabílísering núna um daginn þegar ég skráði mig í skólan. Fastur punktur. Núna vantar mig vinnu. Og það er búið að bjóða mér eina. Restin er að mestu samningsatriði, þótt ég viti ekki hvort ég taki henni ef ekki semst.

Annars var ég að vinna í kvöld. Átti að vera ein, en fékk nýja skvísu með mér. Aldeilis frábært sko. Líkaði hún vel í alla staði. Svona lækablúl persón! Elska svona nýtt fólk, sem þorir að taka af skarið en hlustar samt og fylgist með, er jafnvel til í að spá aðeins í hlutunum með manni. Ekki bara veggjaskraut ;)

Annars held ég áfram í dugnaðarkastinu mínu. Er búin að taka til í tölvuherberginu og því er bara smotterí eftir fyrir barnaafmælið á sunnudaginn. Á morgun er það svo þí geim! Ísland-Svíþjóð vúhú. María segir það asnalegt að horfa á handbolta þegar það er HM í fótbolta. piffff

Ruggandi báturinn er hættur að rugga og vindurinn ber hann beint áfram, ekkert rugg. Og því engin sjáveiki. Ég elska byrinn.

Gleðilegan Þjóðhátíðardag Ísland!

Harpólfurinn.

fimmtudagur

ógó dugleg!

Var að skrá mig í námskeið fyrir komandi vetur. Vona að ég sé ekki að taka of mikið. 8 einingar á haustönninni og 9 á vorönninni. Ég er dugleg :)

Er massa sybbin, er samt að fara að klára það sem ég byrjaði á. Að þrífa og taka til... skellti í gær einni umferð á gluggakistuna í eldhúsinu. Ekki veitti af sko... Ætla aðeins að rölta um með pensil í hönd, strjúka yfir ofninn minn og bletta hér og þar :)

Tók sko stofuna algjörlega í gegn í rólegheitunum. Skúraði og bónaði, þreif gluggana að utan og innan, fiskabúrið þreif maðurinn og svo tók ég annan sófan. Hinn er leður og mig vantar stöff til að þrífa og fínesera hann. Það kemur að því.

Fann sófan "minn" í gærkvöldi í ikea bækling. Og sjónvarps/hillusamstæðu. Nú vantar mig bara aurana til þess að kaupa þetta.... en það er lítið problem. Ekki satt?

Ætla að taka holið núna, skrúbba og sjæna. Löngu komin tími á það :)

duglegi bloggarinn... Harpa

föstudagur

blabla

Ætli ég verði óstöðvandi núna? Var ógeðslega dugleg í dag. Ofvirk.is eins og Sylvz segir. Þreif m.a. ógeðslegu ruslageymsluna mína OG ATH OG ruslatunnurnar! ojjjjjjjj jakk, bjakk! mæli eindregið með því að einhver stofni fyrirtæki eftir þessari hugmynd. Flutningabíll eða ólíka. Með færibandi í gegnum "kassan" þú setur tunnuna fremst og svo rúllar hún eftir bandinu og fær feitan háþrýstiþvott ásamt skrúbbi osfrv og kemur tandur, tandur, tandur hrein út. Svona færanleg ruslatunnuþvottastöð í líki bílaþvottastöðvar.

þvottavélin mín er í hönk. Hún sauð uppáhaldsjakkan minn! Bölvuð! Ástæðan: Ég (hvatvís.is) reif motturnar úr bílnum og setti þær í þvottvélina. Smá of of of mikið af sandi og drullu og vélin dældi ekki af sér. Ekkert sigti á mínu heimili og því verður að snú kvekendinu, gera á því kviðarholsskurð mikinn og losa þar tilætlaða hosuklemmu á þar til gerðum gúmmípúng. Í þessu tilfelli var púngurinn fullur og fékk fullnægingu/tæmingu í baðherbergisruslið (ógeðslegt fullt af sandi og grjóti) og skolun í vaskinum. Nema að þegar maður losar klemmuna, þá kemur svaka gusa. Gusa sem fleygði sér á einn, EINN vír og samkvæmt manninum mínum (sem stúderaði raflagnir í denn... í skóla SKO) átti að fara þarna *bend* svo ég tengi, set rafmagnið á og volla, lö maskína virkar. Glæsó.

Drullugu motturnar fengu snúning nr 2 og allt virtist líta vellllllll út. Setti svo bara regjúlar föt í sem ég ætlaði að ná úr vélinni fyrir morgundaginn. Í miðju prógrammi slær rafmagninu út. Við prófum og reynum og upptökin, jújú. Lö þvottamaskína! svo það var sett rafmagnsstraff á hana og svo beðið. Og hún opnuð. Og það RAUK úr henni! ekki vélinni, NEI úr þvottinum mínum!!!!! *grenj* Hann var sjóðandi heitur. Eitthvað sem á ekki að gerast á 30° prógrammi. Er að þurrka bæði í þurrkaranum og á herðatrjám. Þori ekki að vona að þetta sleppi....

Ástæða þess alls var að elskulegur, ástkær eiginmaðurinn benti aðeins vitlaust. Skeikaði um litla 30 cm! Sem er jafnlang og gömlu góðu reglustrikurnar frá því í barnaskóla.

Annars er vinnutörn dauðans framundan. ca 11 tímar á dag fram til sunnudagsins 18. Fer með strumpólf strákarass í sveitina í fyrramálið. Vika án hans *grát* En hann á eftir að hafa það svo gottttt! *öfund*

mig langar í viku sveita ferð.

Harpan

p.s. það lítur út fyrir að mikið hreinna hjá manni ef gluggarnir eru hreinir...

þriðjudagur

Get ekki annað en skánað úr þessu...

Sit hérna andvaka. Á 3 lítra af rauðvíni og ákvað að fá mér bara svoleiðis :þ

Annars er ég voðalega mikið að spá og spekúlera. Í allt og öllu. Eins og heimilinu, stjórnmálum, samfélaginu og fleiru. Ég þarf eiginlega að spá betur í því áður en ég blogga um það. Þarf að njörfa það niður í skotheldari pælingar. Það er margt sem brennur á huga mínum þessa daganna. Ég ætti í raun að bjóða einhverjum í rauðvín og gott tjatt. Auðbjörg væri tilvalin kantídat. Læt kannski verða af því að á morgun.

Ástæða andvökunar er einföld. Ég sofnaði með orminum um 10 leytið (ekkert uppeldi á þessu...) og vaknaði svo rétt fyrir miðnætti við að þvottavélin tók sólódans. Stökk framúr, fékk hjartaáfall því þurrkarinn hafði stoppaði í miðju prógrammi.. Bjóst við annari slitinni reim. En hann hélt áfram. Og vélin róaði sig í dansinum. Lagðist uppí aftur og heyrði svona í gegnum svefninn að maðurinn kom heim. Korteri seinna hringdi dyrabjallan! Klukkan ekki orðin 1 og ég vöknuð. Er búin að liggja og velta mér um í rúminu síðan nánast.

Er að spáí hvort ég eigi að hella upp á kaffið eða fara og leggja mig... Stór spurning. Ég á nýtt brauð og egg. Get líka soðið þau. Annars er ísskápurinn minn fullur af bjór og jellyskotum síðan í gæsununni um helgina. Get alveg legið í mareneringu fram að helgi. En á föstudag byrjar bilun.is HM í fótbolta. vúhú.

Læt þetta nægja að sinni. Blogga kannski aftur á næsta rauðvínsglasi.

Lö Harpólfur