Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

Alveg að koma helgarfrí!

Bara rétt handan við hornið. 2 næturvaktir og ein kvöldvakt eftir. Hlakka ekkert lítið til, enda mikið búin að vinna undanfarinn mánuð auk þess að samkvæmislífið var líflegt!

Fór á Gay-Pride á laugardaginn, í vinnunni. Skemmti mér stórkostlega vel! Var svo stolt af fánaberunum mínum :) Kíkti svo í mýflugumynd á hana Hildi mína eftir vinnu. Hún á afmæli í dag þessi elska. Til hamingju með daginn.

Á morgun er ég að fara og prófa nýja vinnustaðinn minn. Hlakka helling til en samt er smá kvíði í mér. Það er gott samt, kvíði í hæfilegu magni er góður. Síðasti vinnudagurinn minn á sambýlinu verður 24. ágúst. Svo er stórt ættarmót og afi að verða 90 ára! Ég ætla að verða eins og hann þegar ég verð gömul.

Það hefur orðið fjölgun á heimilinu. Nýjasti meðlimurinn heitir Skræpa og er kettlingsskott. Systurdóttir hennar Skrítlu.



Hún er reyndar líka fyndnasti kettlingur sem ég hef nokkurn tíman séð. Algjör töffari útí gegn. Labbaði hérna inn, ófeimin, óhrædd, labbaði beint að Skrítlu og þefaði af henni. Skrítla var hissa á þessu skrípi í 2 daga. Steinhissa! Á 3 degi var hún komin með pínu nóg af skrípinu svo ég stíaði þeim aðeins í sundur, smá breik. Núna tæpum 2 vikum eftir að skrímslið kom eru þær bestustu vinkonur. Hafa náð fullkomnu jafnvægi og kúra og knúsast saman.

Skil samt ekki afhverju svona "kettlingur kemur inn á heimilið" dæmi gengur svona svakalega vel hjá mér?

Darrinn er á einhverju eigingirnisstigi. Algjör Nenni Níski þessa daganna. Hann á! *flisss*

Engin undra að ég sé þreytt þessa daganna. Vann 190 tíma á sambýlinu í síðasta tímabili. Og slatta á barnum ofaná það. Ætlaði í partý um verslunarmannahelgina. Sofnaði kl 20.00 ætlaði aðeins að leggja mig... Vaknaði um 12.30 daginn eftir! Næs :) Langði samt í partýið og fúlt að missa af því.

Nóg í bili. Verð bara andlaus undir álagi. Það léttist óðum á því ;) Sé fyrir endan á því nú þegar.

knús og kremjur!

föstudagur

Van og vellíðan.

Mér tókst frábært afrek hérna í vinnunni. Trúnaðarskylda, en ég er alveg hrikalega montin og langar mest að bugta mig og beygja í öll horn. Og býst auðvitað við klappi fyrir frammistöðuna. Það er hápunktur dagsins/kvöldsins/næturinnar.

Ég er búin að segja upp og á bara 3 vikur eftir. Er komin með nýja vinnu og allt lukkunnar velstandi. En ég er nú þegar farin að sakna bæði íbúana og eins samstarfsfólksins. Íbúarnir hérna eru yndislegir, allir með tölu, þekkja mann orðið svo vel og maður er orðinn svo náinn þeim á einhvern furðulegan hátt. Fyrir utan þau skipti sem maður sér ávöxt af starfinu og framför eða bætingu á einhverju sviði. Eitthvað sem maður hefur sjálfur lagt til :) Upplifi núna ofboðslega mikin söknuð og langar mest að skæla pínu. Það er lágpunktur dagsins/kvöldsins/næturinnar.

Að öðru leyti er ég hress. Fékk augnsýkingu um daginn og hélt ég myndi missa bæði augað og sjónina. Komst sem betur fer að hjá augnlækninum sem dópaði mig snarlega upp með dropum og kremi. Og rukkaði formúgu fyrir. Hver gerir svoleiðis rétt fyrir mánaðamót?

*tómt* er í miðri vinnutörn, hlakka til að fara í helgarfrí 18-20. ágúst. Er samt óeðlilega aktív og dugleg í vinnunni... miðað við törnina og líka að ég á svo stuttan tíma eftir.

Harpa vinnualki.is