Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Alexander Týr

Var færður til skírnar í Dómkirkjunni í morgun. Hann var allra barna þægastur og svaf alla messuna, tók undir "Ástarfaðir, himinhæða" mundi svo ekki textan og sofnaði bara aftur...

Buðum svo okkar nánustu uppá Ítalska tómatsúpu, Lasagna og kökur og kaffi. Yndisleg stund með fjölskyldunni :)

Drengurinn virðist nú bara sáttur við nafngjöfina og stóri bróðir búin að læra að þekkja stafinn hans, litli bróðir á "apastafinn"

kveðja Harpa

laugardagur

Allt að gerast!

Litli kútur stækkar og þroskast hratt, honum finnst mamma sín svaka sæt og skemmtó og hlær að henni öllum stundum, ja nema þegar hann er að drekka ;) Sem hann gerir greinilega að mikilli færni, rúmlega 7 vikna var hann orðinn 5855 gr! Búin að þyngjast um 2 kg 235 gr á innan við 2 mánuðum!

Annars er allt á hvolfi, erum að taka til í geymslunni og hreinsa til fyrir skírnarveislu, við ætlum að láta skíra á mánudaginn og nafnið verður þá "afhjúpað".

Sem sé allt í ljómandi góðu á rjómabúinu :þ

Harpa rjómakýr!

Bjútímont!




fimmtudagur

Prjónamont!!

Fyrst gefur að líta hérna þessar stórkostlegu ullarprjónabuxur, síðar gerðar eftir bleiubuxna uppskrift, bætti bara við skálmum. Virka ótrúlega vel, sérstaklega með slingnum! Við buxurnar er gríslingurinn í janus samfellu og ullarsokkum sem ég prjónaði.


Nærmynd af fínu fínu sokkunum (gleymdi að mynda vettlingana, en þeir eru úr sama garni, sama lit, ekki auðtýnanlegir)


Hér er svo mynd af peysunni, hún er alls ekki gallalaus, en hugarfóstur mömmunnar og uppskálduð frá a-ö! Er mega stolt af henni. Hún er rosalega teygjanleg og úr ull off course! Við peysuna er hann í Joli bleiu, hér sést ágætlega hvað hún passar vel, hún er medium en guttinn er ca 5.5 kg og ekki nema tæplega 6 vikna. Svo eru fínu sokkarnir þarna líka :)


Vettlingar á stóra strákinn, á bara eftir að ganga frá endunum.


Og svo ein hrikalega sæt af okkur mæðginunum í sturtu :)


Fleiri myndir á myndasíðunni :)

kveðja Harpa prjónakona

þriðjudagur

Gamaldags húsmóðirinn ég!

Uppgötvaði hæfileika sem legið hefur í dvala í u.þ.b. 14 ÁR! Að prjóna. Man ekki eftir því að hafa prjónað eða heklað síðan í gaggó! Ekki klárað neitt alla veganna, gerði vettlinga í haust en kötturinn tætti annan og hinn fór í suðuþvott... end off story fyrir ullarvettlinga. Þegar Darri var lítill ákvað ég að prjóna peysu og gerði stroffið, gafst síðan upp.

Núna ákvað ég að ég hlyti að geta prjónað ullarbuxur yfir taubleiu. Eftir 3 ferlega misheppnaðar tilraunir tókst það! Síðan þá hef ég verið óstöðvandi, gerði síðbuxur með stroffi, vettlinga og sokka í stíl handa litla stúfnum og er að leggja loka hönd á vettlinga á stóra stubbinn. Á prjónunum eru svo virkilega flott lambhúshetta á þann litla. Manninum mínum finnst verst að ég nenni ekki að prjóna á stórt fólk :þ Ekki ennþá, þarf að byggja upp færni og sérstaklega prjóna-egó!

Svo standa allar plönturnar mínar í blóma, svaka gróska. Bæði ástareldurinn og heimilisfriðurinn m.a.

Uppáhalds búðin mín þessa daganna er Góði Hirðirinn, mæli með því að kíkja þangað og endurnýta annara drasl. Fullt af skemmtilegum bókum t.d. borðbúnaður, leiksföng, húsgögn og bara alla veganna.

Sonur minn er grænn framsóknar maður og setur "eks Bigga Freys stafur", hann á grátt lamb og á loftmikinn frænda, sem er gleðilegt þegar maður á eks Béé blöðrur.

Ég veit ekki hvað ég kýs, það verður ekki Samfylkingin sem reyndi að kaupa atkvæði með rós hér fyrr í kvöld. Ætli ég geri ekki bara úllen dúllen doff. Kallinn er óákveðinn líka, en á sama máli og ég. Ekki samfylkinguna. Einhverjar hugmyndir?