Langferðasaga og verður því löng.... taka 1 fyrstu 3 dagarnir
Ferðin hófst í raun á föstudeginum 13. júlí. Þá fórum við í smá búðarráp, í Bónus að versla nesti, í Rúmfatalagerinn að versla smá viðlegubúnað, í Garðheima að kaupa kattmat og síðast en ekki síst fórum við í sveitina og náðum í Krúserinn hans bróðir míns, en við skiptum um bíl við hann og hann var á Jimny-inum á meðan við krúsuðum um :) Skúli sá um að passa ketti, fiska og blóm á meðan við vorum í burtu.
Við lögum svo af stað frá Ránargötunni árla morguns laugardaginn 14. júlí. Darranum fannst ekki leiðinlegt að vera á leiðinni í ferðalag...

Leiðin lá um Borgarnes, þar sem við stoppuðum á Shell skálunum og fengum okkur smá seinni árbít. Alveg afbragð að stoppa þar. Síðan mættum við á ættarmót við Hreðavatnsskála. Þaðan ókum við um dalina og skoðuðum ræturnar ásamt því að skoða víkingabæinn Eiríksstaði í Haukadal. Hér er svo mynd af náttúrubarninu Darra í dölunum.

Biggi minn féll síðan fyrir þessum en hann fundum við í Sælingsdal, en þar var gist um nóttina

Það blés á tímabili og flugdrekanum var komið á loft:

Á sunnudeginum þann 15. júli ókum við um suðurpart vestfjarðanna. Bigga fannst þetta svakalega flott rafmagnslína:

Við stoppuðum í FLókalundi, Darri var ofboðslega hrifin af kíkinum sem er pjúra RL design:

Við mættum líka þessum gaur:

Og við eigum svo sannarlega litla og skrítna skugga:

Stoppuðum á Hnjóti og skoðuðum gamlar minjar, bæði bíla, flugvélar, hattinn hans Gísla í uppsölum og fleiri menningarverðmæti. Hrikalega skemmtilegt safn!

Um kvöldið enduðum við í Breiðuvík, að ég held yndislegasta stað á Íslandi, með útsýni yfir ystu sjónarrönd, fjallasýn, sólskin, blíðu og einstaklega skemmtilegt andrúmsloft frá gestgjöfunum. Tjaldstæðið kostar 1000 kr á kjaft en innifalið í því er aðgangur að klósetti með heitu vatni, sturtu og þvottvél, heitt kaffi og te hvenær sem er, aðgangur að matsal, NETINU!! auk þess sem að ofan er talið. Myndirnar að neðan tala sínu máli fullkomlega að ég held!




