Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

Vika óboðinna og innilega óvelkomnara gesta!

Já, haldiði ekki, bara blogg #2 á einni viku!

Það vildi svo vel til að ég póstaði afmælispóstinum strax eftir miðnættið. Að kvöldi afmælisdagsins fékk afmælisbarnið sína fyrstu gubbupest, jej! Hann sofnaði svo í fangi föður síns (sem var líka með veikan maga) um miðnættið en þá fékk mamma hans, aka ég svona skemmtilega í magan, elskulegar svona upp og niður pestir, ha?

Á fimmtudagskvöldið vildi svo skemmtilega til að hér fannst njalli frændi! Litla barnið aftur.

Mjög skemmtilegt eða þannig, ég sit hérna löðrandi í sápu og sótthreinsi og skrúbba sem mest og best! Þvílíkur viðbjóður! Hrollur, ógeð, ógeð ógeð! Búin að éta einhverja litarefnis, msg töflur (Biggi segir að það sé msg í þeim sko)

Mæli ekki með þessu, hvorugu og það síst í sömu vikunni. Þarf sannarlega að detta í það fljótlega til að jafna á þessu!

kveðja, Harpa.

1 comments:

At sun. apr. 06, 09:46:00 f.h. GMT+0, Blogger Vala tjáði sig...

Ég krossa bara puttana og vona að svo bætist ekki hlaupabóla í safnið þar sem það væri nú alfarið mér að kenna. Úff vonandi þarf ég aldrei að fá njalla í heimsókn! *hrollur*

 

Skrifa ummæli

<< Heim