Mega mont
Ég er alveg stoltasta mamman í heiminum þessa daganna. Fyrst eru hér 2 myndir af litla gorminum mínum að borða banana, maður er ótrúlega klár þótt maður sé smár!


Þessum svip náði ég svo af honum, svakalega ánægðum við að borða brokkolý í kvöldmatnum í kvöld! Óborganlegur svipur hreinlega!

Og þetta afrekaði síðan stóri strákurinn minn fyrr í kvöld. Ógurlega duglegur, spurði mig bara hvaða stafur kæmi næst og skrifaði þá síðan bara án forskriftar og alles!

ENdilega kommentið nú á þessa duglegu drengi mína, ég ætla að springa úr monti á meðan ég bíð eftir þeim!
kv monthænsnið

3 comments:
Æðislegir :) Skrýtið hvað tíminn líður hratt, mér finnst eins og þú hafir bara verið ólétt í fyrradag.
Almáttugur hvað börnin þín eru orðin STÓR!!
Mikið hlakka ég til að koma til þín í kaffi og skoða þau!
kv. Granni
Flottir :)
Skrifa ummæli
<< Heim