3 ár!
Síðan ég hét manninum ást og virðingu osfrv. Man ekki heitin, en ég man þó hver hann er, og líka að ég elska hann ofurheitt.
Síðan þá hefur mikið gerst. M.a. hefur verið haldin önnur brúðarveisla í skemmunni. Reyndar dulbúin sem 50 afmæli, en það var hann faðir minn sem gekk í heilagt hjónaband og Bryndís hélt uppá afmælið sitt þar fyrir nákvæmlega mánuði síðan!
Ætla hringja í þau á morgun og óska þeim til hamingju!
Annars er allt í lukkunnar velstandi. Darrinn kominn heim frá Danaveldi, sólbrúnn og með ljósar strípur. Greinilega lítið rautt í hans hári. Hann er líka hjólabrettinu ríkari, og færði mömmu sinni súkkulaðipoka. Hann skemmti sér líka stór vel, fór í Dýragarð, BonBonland, sá Sirkus Arena og svo var heitur pottur við húsið, sem mikið var sullað í.
Hann fór síðan á leikskólan í dag, á hlaupahjóli, og núna getur hann staðið með báða fætur á hjólinu og látið sig renna. Duglegur strákurinn! Hann tók síðan tremma kast í stóru flottu krónu búðinni niðri á granda. Sá yngri gólaði síðan og gargaði seinna í kvöld, þar sem mömmu hans leyfðist ekki að tala í síma á meðan hún væri að gefa. Það hefur verið lagt eignarhald á brjóstin á mér!
Og svona fyrst ég nenni að setjast og blogga, þá langar mig svakalega að þakka fyrir mig og okkur. Við höfum fengið svo mikið af æðislegum gjöfum handa okkur og Alexander Tý. Takk fyrir okkur, gott fólk :)
Farin í bólið, það er leikskóli í fyrramálið (við mættum um hádegið í dag *hóst*)
Harpa

2 comments:
til hamingju með brúðkaupsafmælið! Ótrúlega er tíminn fljótur að líða ;)
Til hamingju með daginn gella, og skemmtileg ferðasaga, rosalega gaman að ferðast svona um landið, stoppa þar sem manni dettur í hug og tjalda :)
Svo kemur þú til DK og heimsækir Hrefnu!
Skrifa ummæli
<< Heim