Langferðasagan framhald.
Föstudaginn 20. júlí ókum við af stað frá Drangsnesi. Gufuheilin með brjóstaþokuna, uppgötvaði að það væri föstudagur og pabbahelgi! Því var snarlega reddað með símtali, og við ákváðum því að halda bara áfram að þvælast, hringdum á Hvammstanga og ákváðum að heimsækja Tóta vin hans Bigga þar sem hann var heima. Þar skoðuðum við hesthús með reiðskemmu, fórum í sund og út að borða á stórmerkilega staðinn Sirop, mjög fínar pizzur þar! Svo var tekið fyrir að við fengjum að tjalda í garðinum, Tóti heimtaði að við svæfum í hans rúmi og hann svaf í sófanum! Gaurarnir fóru síðan á föstudagskvöldinu og lögðu net og vitjuðu svo um það á laugardagsmorgninum. Þeir veiddu einn fisk, sjóbirting minnir mig og einn Lóm!


Á Laugardeginum þann 21. júlí ókum við svo sem leið lá á Akureyri. Við kíktum við á Eiríksstöðum, þar sem ég var í sveit og stoppuðum örstutt í Sólheimagerði þar sem Biggi var í sveit. Jobbi var hress og kátur og fannst bara gaman að sjá strákinn :) Við lentum svo á Akureyri seinni partinn og byrjuðum á því að fara í gönguferð um gamla bæinn og skrúðgarðinn. Keyptum okkur að sjálfsögðu Brynju ís! Tjölduðum svo og grilluðum okkur ógurlega gott svínakjöt. Okkur fannst tjaldstæðið á Akureyri einna síst af þeim sem við tjölduðum á, vírgirðingin kringum það gerði það aðallega að verkum. Eins er þvottaaðstaðan í einskonar ruslaskáp fyrir utan klósett/sturtu aðstöðuna og mér fannst það frekar óspennandi, sérstaklega í svona blautu veðri eins og við fengum á laugardagskvöldinu.
Á sunnudeginum 22. júlí vöknuðum við í frekar röku veðri. Þegar hér er komið við sögu eru skórnir hans Darra orðnir haug drullugir og því var hann í stígvélum það sem nánast eftir var af ferðinni. Stefnan var tekin á Mývatn og Ásbyrgi. Við fórum í Samkaup í Reykjahlíð og stoppuðum síðan og skoðuðum bæði Goðafoss



Og síðan Dettifoss, þvílíkt náttúruafl! Á fyrstu myndinni má sjá Alexander vera að fá sér að drekka í Hotslingnum á leiðinni að Dettifossi:

Hann horfði síðan mjög hissa á fossinn og fannst hann greinilega jafn flottur og foreldrunum.


Þarna sáum við í Selfoss, sem er fossinn fyrir ofan Dettifoss.

Og svona leit Krúserinn út eftir aksturinn niður þjóðgarðinn! ojjjjjjjjjjjjj!

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim