Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

langferðasagan framhald,

Á mánudeginum 16. júlí fórum við síðan á Látrabjarg og skoðuðum okkur um á þessum merka stað. Við sáum og heyrðum í selum:


Og Darra fannst vitin frekar flottur! Veðrið lék við okkur eins og sjá má á klæðnaði og skýjafarinu!




Við ókum síðan á Rauðasand en þar hefur myndavélin greinilega fengið smá pásu... Ofboðslega fallegt að sjá þar þennan rauða sand, en hrikalegur vegurinn niður á sandinn. Samt kemur pósturinn daglega og mjólkurbíllinn 2 sinnum í viku! Við stoppuðum og fengum okkur vöfflu og kaffi hjá einstaklega elskulegum hjónum sem reka þar kaffihús. Fengum auðvitað sól og blíðu :)

Í botni Patreksfjarðar sáum við svo þennan, en hann er víst elsti stálbátur íslendinga.


Við ókum síðan á Patreksfjörð til að taka olíu og kaupa kort, sem reyndar var ekki til. Þar fengum við þó leiðbeiningar um hvernig við kæmumst í Selárdal, en þar hrifumst við af listaverkum Samúels Jónssonar. Okkar langaði nú líka að fara heim að Uppsölum, en það var farið að kvölda og kólna svo við ákváðum að fara heim á Bíldudal og koma upp tjaldinu fyrir nóttina. List Samúels:





Á þriðjudeginum 17.júlí ókum við svo sem leið lá í átt til Ísafjarðar. Við komum við á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Þar er safn tileinkað honum, og það á víst að fara að breyta því helling fyrir 2011. Þar er líka ofboðslega fallegur burstabær, þar er kaffi og vöfflusala.


Við fengum góðfúslegt leyfi til að skipta á Alexander á ullargærum sem lágu þarna, honum fannst það æðislegt, hann skemmtir sér sjaldan eins vel og á gærunni hérna heim. Í þakklætisskyni meig hann í gæruna á þessari hálfu mínútu sem það tók að taka óhreina af og setja hreina á! Eins og sést er hann afskaplega glaður með ferðina (og í taubleiu)! Það er eiginlega bara prakkarasvipur á honum!


Við sáum víða mikla list, víðast var það heimafólk sem seldi það líka. Þetta hékk uppi á Hrafnseyri, gert úr þvæfðri ull. Mér ullarkellingunni finnst það æðislegt!


Við Alexander í kaffi á Hrafnseyri:


Við skruppum svo í sund á Þingeyri, þar er þessi fína aðstaða, innilaug og pottur, verst að laugin var í það kaldasta og potturinn var eiginlega full heitur! Eftir að hafa skafið af okkur skítinn ákváðum við að bruna á Ísafjörð, en það var rok og skýjað á Þingeyri. Í Hnífsdal beið okkar herbergi og hlýjar móttökur!

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim