Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

Á mjög bágt með trúa....

....því að núna eigi ég 5 ára gamalt barn! Að það séu 5 ár síðan hann fæddist, þessi elska. Finnst eins og það sé mun styttra, bara næstum því í gær. Tíminn flýgur hreinlega. Við héldum smá afmælisveislu í gær og litla/stóra dýrið mitt fékk fullt af flottum pökkum, allt "einmitt það sem hann langaði svo í" hahaha. Við gáfum honum hlaupahjól og hann varð sko að fara á því á leikskólan. Svo fékk hann veiðistöng, labbrabbtæki í formi Vidda og Bósa, Fjarstýrðan bíl sem hrynur í sundur þegar hann klessir á og fer svo í sama formið þegar maður ýtir á takka. Skil ekki afhverju engin hefur búið til slíkan fullorðins bíl :)

Surtla litla hefur fengið nýtt heimili, núna eru bara 7 kettlingar eftir, fyrstur kemur fyrstur fær :þ

3 comments:

At mið. jún. 20, 04:31:00 e.h. GMT+0, Blogger LindaKrissó tjáði sig...

Til hamingju Kristófer með að vera 5 ára og til hamingju Harpa með að eiga 5 ára gaur! Eitthvað erum við samtaka í afmælisgjöfunum, Harpa. SDS fékk líka hlaupahjól...

 
At lau. jún. 23, 03:14:00 f.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

hahaha! Mæli reyndar eindregið með hlaupahjóli handa 5 ára, Darri elskar nýja hjólið sitt, það er svo flottast! Hann heilsaði öllum sem við mættum á leiðinni heim af leikskólanum á afmælisdaginn með "Hæ, ég á þetta hjól" með *spring úr monti yfir nýja hjólinu* svip.

 
At lau. jún. 23, 11:11:00 f.h. GMT+0, Blogger Hannarut tjáði sig...

Tillykke með stóra strákinn þinn um daginn. 5 ára vááá, já tíminn er rosa fljótur að líða.
Knús til ykkar.
p.s. viltu ekki bráðum fá Hókus pókus stólinn þinn? Hann er upp í sveit hjá mömmu og pabba.

 

Skrifa ummæli

<< Heim