Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

Rjómabúið Ránargötu, góðan dag!

Guttormur litli hefur þyngst um tæpt 1/2 kg síðan á þriðjudaginn í síðustu viku. Þá var hann 3670 gr og hafði náð fæðingarþyngdinni (3620) og bætt á sig 50 gr. Núna er hann orðinn 4120 gr! Þetta var skjalfest af hjúkkunni í ungbarnaeftirlitinu sem mætti hérna árla í morgun.

Litli kútur skrapp síðan með pabba sínum í sturtu í gærkvöldi, og fannst það ekki leiðinlegt!

3 comments:

At mið. apr. 18, 06:57:00 e.h. GMT+0, Blogger Margrét tjáði sig...

Við óskum ykkur öllum innilega til hamingju með drenginn. Kær kveðja Margrét Arngríms og fjölskylda

 
At mið. apr. 18, 08:01:00 e.h. GMT+0, Blogger tilvistarkreppan tjáði sig...

Elsku Harpa mín, mikið er þetta falleg mynd af þeim feðgum og alveg frábært að heyra hvað gengur vel með litla kút - fer ekki bráðum að koma nafn eða þannig sko -;)

Hún er líka rosalega falleg myndin þar sem stóri bróðir heldur á þeim litla.

Gangi ykkur allt í haginn og njótið alls hins besta.

 
At lau. apr. 28, 07:06:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Hafsteinn: Er þetta pabbinn?
María: Já.
Hafsteinn: Hvað heitir hann?
María: Hann heitir Biggi.
Hafsteinn: Já, alveg eins og að byggja hús!

 

Skrifa ummæli

<< Heim