Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Gott húsnæði?

Já, ég hlýt að vera þægileg til innbús, alla veganna vill krílið ekkert fara að koma sér í heiminni. Er að spáí að ganga bara með það fram að fermingu...

Fékk æðislegar ullarbleiubuxur með póstinum í gær, pantaðar af ebay! Hrikalega sætar, sendi mynd með til að sanna mál mitt!



Þessi mynd er bráðstolin af síðu seljandans. Svo er slingurinn minn kominn, ég þarf að fara og leysa hann út úr tollinum á mánudaginn. Hlakka ekkert lítið til! Ætli ég bruni ekki beint í ML til að sýna AJ græjuna :þ

Annars, best að geyma eitthvað af malinu, þá hef ég eitthvað að segja næstu daga á meðan ég læt fólk vita af því að ég sé ennþá ólétt :þ

Kær kveðja Harpa bumbulína

6 comments:

At lau. mar. 31, 02:31:00 e.h. GMT+0, Blogger Brynja tjáði sig...

það verður nú ekki lengi - þú þarft örugglega að senda einhvern fyrir þig í tollinn á mánudag, nú eða koma við á leiðinni af fæðingardeildinni... ;)

 
At lau. mar. 31, 06:35:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Hæhæ, var bara að tékka á þér! Já, og fyrst þú ætlar að ganga með eitthvað framyfir, þá er 17. apríl mjög góður afmælisdagur sko.. heyrumst, Eygló (úr Berjahlíðinni)

 
At lau. mar. 31, 07:52:00 e.h. GMT+0, Blogger Hannarut tjáði sig...

Dúllu buksur. Það er nú ekkert víst að þú getir sjálf náð í pakkann.....Hafðu það gott.
Knúz Hanna.

 
At lau. mar. 31, 08:15:00 e.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

Mér þykir þið bjartsýnar, ég stefni ótrauð á 20 apríl, minnz eigins afmælisdag ;)

 
At lau. mar. 31, 08:39:00 e.h. GMT+0, Blogger Vala tjáði sig...

mig dreymdi þig í nótt.....var alveg viss um að nú væri eitthvað að gerast en nei nei......ég held mig við 3.apríl ;)

 
At sun. apr. 01, 08:51:00 f.h. GMT+0, Blogger AJ tjáði sig...

Ó emm gjé, ég er SVO spennt!

bleiubuxurnar eru æðis! Á svona ;) mæli meððeim.

Hlakka til að sjá slinginn!

 

Skrifa ummæli

<< Heim