Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

Árshátíð og lítill lasarus

Elín systir kom í gærkvöldi og sat hjá stúfnum mínum á meðan við hjónakorninn skruppum á árshátíð Hornsins. Það var voðagaman, ítalskt mafíósa þema, Kobbi sló í gegn með olíugreitt aftur og örþunnt yfirvaraskegg. Ég leit nú meira út eins og spænsk senjóríta :þ Ætlaði að henda inn myndum, en finn ekki myndavélina. Fór síðan bara snemm heim, með stórkostlega vinninga úr happadrættinu, Gunnlaðarsögu, koníaksflösku, fullan poka af pottagaldrakryddum, 2 boðsmiða á bæjarins bestu og pottagaldra uppskrifta bæklinga. Litla krílið mitt spyrnti svo vel undir rifin mín að ég varð bara að fara heim í þægilegri föt og þægilegri stellingu. Biggi trallaði nú eitthvað áfram.

Litli grísinn minn er lasinn, með hita, hósta og kvef. Hann var voða mikið lasinn í gær og í nótt en skárri í dag. Samt ennþá vel heitur og slappur. Svo finnst honum hóstasaftið sitt svo vont, hann tekur það samt alveg (og gerir það sjálfur) en með þvílíkum svip og grettum! Hér er laukur á öllum á náttborðum, vöðvagelið fer að klárast og það virkar mun betur en hóstamixtúran ;) sem slær þó aðeins á.

Núna sitjum við mæðginin og horfum á teiknimyndir, Biggi í skólanum og heimilið á hvolfi... Hver vill koma og hjálpa mér að þrífa?

kv Harpa með spyrnubarn í bumbu!

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim