Bloggedí blogg!
Ég er svo hamingjusöm. Ég á svo gott líf :þ
Nei, segi svona, hef það voða gott, skríð í 33 vikur á sunnudaginn og er bara voða hress ennþá :) Ennþá að vinna og svo er hreiðurgerðarþörf farin að láta kræla á sér. Er búin að sortera og skipuleggja slatta af heimilinu, vil samt ekki klára allt, þarf líka að hafa eitthvað fyrir stafni í fæðingarorlofinu. Annars dauðlangar mig að mála svefnherbergið mitt. Þ.e. alla veggina og loftið nema brúna vegginn! Taka skápinn í gegn og lakka ofninn.
Hlakka bara til núna að fara að þvo ungbarnafatnað og raða í skúffur.
Svo er ég soddan trendsetter að það verða alltaf 2 vinkonur mínar óléttar á eftir mér :þ Spurning um að eignast mörg börn og fjölga í heiminum :)
kv Harpa.

2 comments:
Ertu búin að finna þessar 2 sem eru óléttar líka??? eða eru þær kannski orðnar 3 ;) heheh
Ertu að reyna að segja mér eitthvað stelpa? Ertu bomm?
Skrifa ummæli
<< Heim