Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

föstudagur

Án titils bara

....næturbloggarinn. Næturvaktir framundan alla helgina. Vinnutörnin er byrjuð í alvörunni núna. Var í fríi á þriðjudag og miðvikudag og það eru einu frídagarnir mínir fyrir utan svefndag (og þá er ég meir að segja stundum að vinna á barnum) eftir næturvaktirnar, fram til 30. júlí. Það er fleira og fleira nýtt fólk að byrja og ógurlegt stuð í vinnunni þessa daganna. Bara gaman.

Á mánudagskvöldið eftir vinnu skutluðumst við í sveitina til að heimta barnið úr sjálfviljugri gíslingu. Vildi óska þess að ég gæti alið þessa elsku upp þar. Hann nýtur þess svo. Þekkir orðið traktorana með nafni (græni er Djonn Díírrrr, rauði er Keis og Gamli er Nalli er þulið utanbókar ef maður spyr), ásamt tegundum hinna ýmsustu véla. Hann ruglaðist reyndar smá þegar hann var að útskýra fyrir mér hvað þeir afi höfðu verið að gera "Vorum í traktornum og gerðum svona hringi" og þar sem mamman skildi ekkert (hélt þeir hefðu verið að snúa) "Nei, mamma *hneyksl* ekki snúa, gera svona KÚLUR" jamm, þeir voru sem sé að rúlla ;)

Svo fer hann út með afa sínum og kemur inn búin að upplifa svo margt og þarf að segja manni frá öllu í smáatriðum. Svo eru kettlingar í sveitinni og hann elskar þá, þrátt fyrir að hafa fengið netta rispu á vangan. Líra er aftur á móti ekki vinur hans... en það eru hundur föðurbróður míns.

En já lífið er yndislegt, rauðvín er gott, baðherbergið mitt er hreint og næturvaktatörnin hangir yfir mér eins og mara. Finnst hundfúlt að geta ekkert gert.

Svo var verið að bjóða mér í geggjað brúðkaup. Eða ekki brúðkaup. Samgefningu? Það bætist ofan á hin 2 brúðkaupin sem ég er að fara í í sumar. Það vill til að ég elska svona samkundur :)

veisluglaða Harpan kveður að sinni.

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim