Í gær, já eða áðan....
Var 15. október. Alltaf pínu erfiður dagur, sérstaklega eins og í ár, systa mín hefði orðið 25 ára. Það hefði sko verið party og fjör, þekki ég hana systur mína rétt! Æi það er bara svona með suma daga... Átti eitthvað bágt bara.. Ekki batnaði síðan líðaninn því að það var próf í morgun, svo var það brúnkumeðferð, svo verkefnavinna, þá hárgreiðsla, svo bruna heim að sækja skó og djammföt, á æfingu, fá sér öl og samloku, fara í förðun, striplast um á g-streng fyrir framan 120 manns!, stripplast aðeins meira (og allt stripplið var með mestu gelgju ever held ég...), skipta meira um föt og sýna þau (laus við gelgjuna) drekka meiri öl og fara heim... vera döpur og senda kallinn á djammið!
Þennan yndismann minn sendi ég á djammið já! Og hana nú! Og svo er hann svo fyndinn... Biggi: Harpa? Hvenær verður þú aftur 25? er það ekki á næsta ári? HAHAHAHAHAHA þið sem ekki vitið getið slegið mér inní þjóðskrá og tékkað á fæðingarárinu mínu...
Vonandi er ég búin að finna Grámuna mína, kemst að því á morgun! Víha! Gríman heima og allir sáttir ;) nema þær því þær eru grounded!
Þar til seinna

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim