Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

Fleirri bréf ???

Í dag var ég að vinna. Kom heim úr vinnunni og andaði mig aðeins niður eftir að hafa tekið hornið á mettíma :) Þegar Biggi kom heim 1 og 1/2 tíma seinna set ég enn í tölvunni (þar sem ég anda mig niður...)!!! Jæja Kristófer var hjá pabba sínum og planið var að fara að flísaleggja... því já það er ekkert eldhús hérna lengur :) Við ætlum að fá okkur nýja innréttingu og alles. Allaveganna ákvað ég að skreppa og kaupa eitthvað í svangin í búðinni áður en við byrjuðum og á leiðinni heim ákvað ég að kíkja í póstkassan. Á horni eins bréfsins stóð "Vesturgarður" en þar vinnur einmitt "elskulegur" leikskólafulltrúin sem sér um að koma syni mínum á leikskóla, og hafði henni nú ekkert gengið neitt mjög vel.. síðast þegar ég talaði við hana sá hún ekki fram á að hann kæmist inn í haust. Jæja ég sorteraði póstinn og tölti upp.. Opnaði vesturgarðsbréfið og viti menn!!! Já haldiði ykkur fast!!! Elsku ormurinn minn er að fara á leikskóla!! Á mánudaginn ætla ég að hringja í leikskólan og athuga hvenær hann má byrja :)

Jæja svo kom ormurinn minn heim og gormaðist aðeins hérna með okkur :) Þegar hann var kominn í ró ákváðum við að skella okkur í flísarnar... Og komumst að því að við erum bara helvíti dugleg!! OG klár!! Ég er t.d. orðinn sérfræðingur í að drullumalla (haha kemur að góðum notum að hafa gert það í denn) og búa til "rendur" og svo lögðum við flísar í gríð og erg og bara smá partur eftir :) Ekkert smá fjör!!!

Jæja það er sem sé tóm gleði á þessu heimili, þessa daganna. Svo mikil að ég er eiginlega hálfskrítin, það er nú búið að ganga á ýmsu hjá mér undanfarið ár eða svo og ég er bara skíthrædd við svona "good times"... :)Hlýt samt að geta vanist því eins og öðru!!

Góðar stundir, mínar gerast varla mikið betri...

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim