Og ég sem hélt að ég væri svo klár á tölvur :S
Eða ekki!!! Er bara ekki að takast hjá mér að tengja þetta, alltaf eitthvað endalaust pikkles :( Ekki bætir úr skák að helvítis ofnæmið er mig lifandi að drepa ég sver það! Ekki nóg með að vera með brjálaðan kláða, svo brjálaðan að ég sprengdi um daginn háræðar (fullt af þeim meir að segja) á öðru lærinu, upphandleggnum og í olnbogabótinni (voðasætt var með huge stórt þar og leit út eins og sprautufíkill), heldur er ég líka með brjálað liðverki líka... svo vonda að í dag þegar ég keyrði austur með Kristófer til að "skila" honum til ömmu sinnar þá varð ég að stoppa á leiðinni til að rétta úr hnénu!! Varð meir að segja að láta bílinn renna niður alla kambana... (já þetta er sem s.s. bensín fóturinn)
Well heyrði í Magga áðan, hann er einmitt að setja upp þrálausa nettengingu líka.. og það gengur svipað vel hjá honum! hehe ætla svo að nýta mér reynsluna hans eftir helgi og hringja í hann þegar ég verð orðinn strand! Hann gaf mér annars ráð ;) sem ég á eftir að prófa :P
Annars er bara ágætt að frétta, vinna um helgina og stuð... jemin eini, held að ég fari að óska þess að flísarnar hlaupi sjálfar á gólfið!
*er ekki í skrif stuði*
Góða helgi

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim