Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

fimmtudagur

Svo dugleg í dag!!!

Ójá alveg massa dugleg, þreif hátt og lágt (gleymdi reyndar hillunni hans KD og var minnt á það...) með aðstoðarmanninn með mér ;) Það eru sko tvöföld þrif.. smá lýsing:
*Setur ryksuguna í samband og kveikir á henni
*Ryksugar ca 1 fm (í mestalagi)
*Ryksugunni er þá kippt úr sambandi af aðstoðarmanninum
*Þá fer maður og þurrkar af inná baði
*Þá heyrir maður ryksugunni stungið í samband aftur...
*Aðstoðarmaðurinn rífur skaftið af og fer að ryksuga...
*Ef maður er fyrir er maður ryksuguður við mikla kátínu aðstoðarmannsinns
*Ef maður hefur verið svo séður að forða sér inná bað að þrífa þá gefst aðstoðarmaðurinn upp
*Aðstoðarmaðurinn nær sér í 1 stk puzzle og 4 bíla og leggst ofan á ryksugurörið í leik...
*Þá tekur maður rörið af og ryksugar kattahár úr sófa og af stólum
*Aðstoðarmaðurinn keyrir af rörinu
*Þú "stelur" rörinu og byrjar aftur á gólfinu
*Byrjið aftur efst og sjáið hvernig það er hægt að vera heilan dag að ryksuga og þrífa eina 75 fm íbúð en bara 30 mín að skúra hell skítuga gólfið!!!

Nú spyr einhver sig "Afhverju bannar hún barninu þetta ekki" og svarið er einfalt, Hann er að læra og hann lærir ekki að ryksuga, þurrka af (jamm hann er voða duglegur við að dusta af neðstu hillunum), elda, pissa í wc osfrv ef hann færi ekki að vera memm... Ef ég leyfi þessu að vera á hans forsendum og "play along" held ég að það séu mun meiri líkur á því að hann verði jákvæðari á þetta ALLT í framtíðinni (ein sem ætlar að vera ÆÐISLEG tengdó sem kenndi syninum að þrífa og elda, hehe)

Ég er samt ekki anti bannisti sko ;) Hann má t.d. ekki klifra uppá eldhúsborð (sem er sko mest spennandi hlutur í heimi) eða uppí glugga... Það er bara svo oft sem að við getum farið aðra leið enn að banna og skamma og banna og skamma. Hann t.d. var nokkrum sinnum búinn að setja baðið á flot.. það er svo mikið rennsli úr kaldavatns krananum að það er ekki í séns í helvíti að það renni allt niður... og ég bannaði og skammaði og bannaði og skammaði... hey núna er ég búin að skrúfa fyrir kalda vatnið þannig að það kemur bara pínu buna og vitiði? Þetta er bara ekkert gaman lengur... núna fer hann bara í vaskinn þegar hann er þyrstur ;) Enda sjálfsbjargarviðleitnin að drepa hann... úff það er ekkert smá erfitt að vera svona pínu lítill og hafa ekki tæknina til að: hella í glas, skera matinn sinn, smyrja brauðið sitt, reima skónna, renna úlpunni, hneppa, osfrv... ekkert smá pirrandi!! Og svo er þetta fullorðna fólk svo skrítið það er alltaf að skamma mann...

Enn það er líka svo gaman að fá að vera þess heiðurs aðnjótandi að sjá barnið sitt taka þessi stóru þroskaskref, bara það að horfa á hann pissa 3 dropum í wc er eins og einhver hefði gefið mér tunglið og sólina, það að sjá gleðina í augunum þegar maður hrósar honum fyrir að vera svona duglegur að hjálpa til þegar hann "loksins" ryksugar stólin í 30 sek og lítur svo á mann bara til að tékka hvort hann fái nú ekki smá bros svo heldur hann áfram að ryksuga stólinn í aðrar 30 sek... Að sjá hann hlæja sig máttlausan yfir svipnum á mér þegar að hann ryksugaði mig... svo fyndinn Laugh og sjá hann hlægja þegar ég greip hann í fangið og fór að dansa við hann, ekkert lítið gaman sko

Á svona stundum er ég svo glöð yfir því að eiga þá allaveganna eitt barn, ég get átt fleirri í framtíðinni (og geri það örugglega) það er því miður ekki öllum sem hlotnast sú hamingja.

einkunarorð dagsins í dag voru: jákvæðni, samstarfvilji og nægjusemi.

oooooguh mig langar ekkert að fara að vinna aftur ;) það er svo gaman að vera heima ;)... minnið þið þig á þetta þegar ég fer að væla "mér leiðist"...

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim