Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Dagurinn í dag,

var fínn. ójá mjög fínn ;) Við Kristófer fengum gesti, alltaf gaman af því sko (já heyriði það ég á ekkert líf... og langar í félagsskap :)) Við fengum líka skemmtilega gesti. Bent og Hafrún komu í kaffi og heimabakað brauð (játs ekkert líf). Svo poppuðum við handa þeim félögum en þeim samdi bara vel ;) voða stuð að horfa á bubba með popp í poka sko, næstum eins og í bíó. Svo var ég geggjað dugleg, ryksugaði allt poppið upp (enda brýnt mál) þvoði þvott og vaskaði upp. Ég þreif meira að segja eldhúsgluggan jakkkkkkk!! Ég hata sem sé vinnuhelgarnar hans Bigga, langar að fara að gera eitthvað sjálf.

Er farin að búa mér til líf...

p.s. ég er ekki geðveik, ég á mér líf, en ég ákvað að vera kaldhæðin í kvöld.............

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim