Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

sunnudagur

Sko....

Ég er EKKI að taka öll test sem ég finn... bara þau sem mér finnst sniðug ;) (tók t.d. ekki "hvaða persónuleika truflun hefur þú") Og hey þau virðast bara fitta mér ágætlega ;) Tékkið á þessu :)

HASH(0x886f47c)
Protector


The ULTIMATE personality test
brought to you by Quizilla


Annars er bara voða fínt að frétta :) Óðinn og Sigrún komu aftur í dag ;) Þeir áttu nú aðeins betur saman í dag en í gær félagarnir. Gátu leikið sér SMÁ saman. En bara SMÁ.;)

Svo fórum við mæginin í labbitúr kíktum niður á grillhús og keyptum okkur svo rosa rosa flottan blómapott í blómálfinum. Jámm ég er með græna putta, orkedían okkar dafnar vel, Biggi vökvar hana og ég spjalla við hana!! Þvílíkt mission að halda einu pottablómi á lífi...

og já ég var læst úti í dag... lestu aftur já ég var læst úti. Það var s.s. einhver sem læsti mig úti... og hver haldið þið að það hafi verið???? Játs hann sonur minn!! Ég fór og skellti ruslinu í rennuna (sem er úti á stigapallinum) og þegar ég snéri mér við KKABÚMMM er hurðinni skellt.. úffff þvílíkt panik ég lyklalaus og alles FUCK!! En já ég tók nett spretthlaup niður í vinnu til Bigga(rifjaði sko upp gamla takta síðan í æsku). Sem betur fer er hann ekki að vinna í Kópavogi. Jæja ég hljóp og hljóp þessa 400 metra ca stal lyklunum af kallinum og tók svo sprettin heim aftur. Handviss um að þar sæti Kristófer organdi og gargandi, tók þrepin í stökkum og á hurðina. neinei þá var minn bara sestur við matarborðið (þar sem hann sat þegar að ég fór út með ruslið) og var að klára að borða.... gvuðs lifandi fegin að vera laus við þessa móðursnift sína ;)

Honum var nú reyndar fyrirgefið, hann var líka svo sætur við mig yfir tv-inu áðan. Var alltaf að gefa mér popp :) Litli englinn minn. SSSSSSSSSSVVVVVVVVVOOOOOOOOOOOO góður.....

jæja nóg í bili

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim