Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

fimmtudagur

Doktorinn...

Skrítið hvað það er gaman að horfa/hlusta á þennan mann, þ.e. Dr. Phil. Alveg met... Maðurinn er náttúrulega common sense frá a-ö sko ;)

Annars skruppum við Kristófer í Fannborgina í dag. Það var algjört ÆÐI!!! Kristófer vakti mikla lukku, enda ekki við öðru að búast ;) Það var svo gaman að koma og flest mundu þau eftir mér. Ég þoli ekki svona "má ekki segja djobb" Maður veit aldrei hvað má segja :( Einn táknað fyrir mig og spurði hvort ég væri komin að vinna aftur, með bros á vör, sko!!! Og svo var yndið mitt sem hrópaði upp yfir sig þegar hann sá mig "Ég þekki þessa" hann mundi reyndar ekki hvað ég hét, en það væru nú líka kröfur að ætlast til þess, þau hafa nú ekki séð mig síðan í október ;) Svo að ég fékk búst á sjálfsálitið og það stórt búst.. Held ég geti bara unnið heimin ;)

Pabbi hringdi í dag. Það eru komin LÖMB í sveitinni og nærveru Kristófers er óskað.. það verður nú að ala þau upp ;) Já ég veit það er mars... en það eru samt komin lömb!! Ætlum að leggjast með höfuðið í bleyti því við verðum eiginlega að fara að skella okkur og þá fara alla leiðina í Dalsel líka.

Um kvölmatarleytið fékk ég orkubúst (jámm mikið af bústi í dag) og lét ekki bara sitja við það elda, ég vaskaði líka upp, klippti sætasta manninn (Biggi var að vinna svo giskið þið nú), þreif baðherbergið að hluta (hillurnar og raðaði líka og skúraði "í kringum sturtunna vegna flóða"), setti í vél, baðaði og svæfði!! Á rétt tæpum 2 klst... Þetta er sennilega meira en ég hef gert síðustu 2 sólarhringa.. Svona fyrir utan "hraðahlaup" með ryksuguna á gólfið í gær áður en Svava kom... og já það var virkilegt hraðahlaup....

Svo var ég náttúrulega besta kona í heimi og leyfði manninum mínum að sofa út... lengi lengi...

Það eru miklar heimspeki pælingar í gangi, kannski ég komi með þær á morgun? Ætlum að gera eitthvað ógó gaman því kallpeningurinn er í frí, fyrsta skipti sem hann á HEILAN dag í frí í rúma viku!

kveð að sinni.

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim