Nú er ég endanlega ógeðslega brjáluð!
Hvað er að barnalands stjórnendum? Þetta er náttúrulega ekki í lagi...
Þetta e-mail fékk ég í kvöld:
Sæl Harpa,
Þessi póstur er sendur vegna minningarsíðu um Perlu Dís sem þú ert með á barnalandi.
Nú verðum við að biðja ykkur um að læsa síðunni með því að setja lykilorð á hana því nú eru nýjar reglur að taka gildi á barnalandi sem banna myndbirtingu af látnum einstaklingum. Þar sem þið settuð þessa síðu upp áður en reglurnar tóku gildi viljum við leyfa ykkur að halda síðunni með því skilyrði að henni sé læst þannig að hún birtist ekki almenningi. Hægt er að læsa síðunni í umsjónarkerfinu á barnalandi á einfaldan hátt og ef ykkur vantar upplýsingar um hvernig það er gert, endilega látið okkur vita svo við getum hjálpað ykkur.
Ef síðunni verður ekki læst á næstu dögum neyðumst við til að læsa henni en þá munum við senda ykkur lykilorðið svo þið getið haft aðgang að síðunni.
Með vinsemd og virðingu,
Þór Sigurðsson og
Sigríður Guðmundsdóttir
www.barnaland.is
ég svaraði þeim, gerði það meira að segja 2, því að fyrst töldu þau sig ekki hafa fengið e-mail frá mér.
Svar 1:
Sæl kæru barnalandsstjórnendur.
Þið verðið að afsaka en ég er yfir mig hneyksluð!!! Afhverju í ósköpunum? Væri alveg til í að vita það. Eins og þið sjáið kannski á umræðunni þá eru margir mjög hissa á þessu og vilja væntanlega líka fá að vita afhverju.
með vinsemd og virðingu
kv Harpa
Svar nr 2 (ívið lengra...)
Kæru Barnalandsstjórnendur.
Ég svaraði e-mailnum sem að þið senduð mér. Hann er núna í sent foldernum í Outlookinu mína svo að ég veit ekki alveg hvert hann hefur farið..
Mér finnst þetta bara asnalegt af ykkur. Síðuna hennar Perlu Dísar var ég búin að opna áður en hún fæddist, þ.e. á meðan hún var ennþá LIFANDI. Hún dó í móðurkviði svo að ég á því miður engar myndir af henni lifandi. 'eg get ekki séð að myndirnar af henni geri nokkrum mein nema þeim sem óttast dauðan. Sá aðili verður þá bara að eiga það við sjálfan sig.
Á síðu Perlu Dísar eru allar myndirnar í sérmöppum, efsta mappan er aðeins með myndum af handa og fótaförunum hennar. Forsíðu myndin er af fingrunum hennar, þeir líta alveg eins út og fingur á lifandi barni, ekkert við þá sem ætti að trufla neinn.
Mér finnst þessi ákvörðun ykkar með eindæmum yfirborðskennd. Ég er mjög mjög reið og alveg ofboðslega sár. Ég á í erfið leikum með að skrifa því að ég skelf og það er alveg hreina satt.
Perla Dís var barn. Hún var barn í maganum á mér. Það eru mínar tilfinningar sem ég er að tjá á síðunni, á þær viljið þið loka.
Perla Dís á frændfólk í útlöndum, foreldrar hennar eiga vini í útlöndum. Þetta fólk vil ég að hafi aðgang að síðunni. Ásamt ÖLLU fólkinu sem stundar barnaland af "ástíðu" og maður þekkir betur en nágrannanna sína. Sá stuðningur sem við höfum fengið í gegnum bæði umræðuna og gestabækurnar hefur veitt okkur mikin styrk. Styrk sem við þurftum og þurfum.
Það er ekkert betra að grafa hlutina, dauðin er eitthvað sem á eftir að koma fyrir okkur öll einhvern tíman. Og það sennilega oftar en 1x í formi missis á nákomnum ættingjum og vinum.
Ég bætti vel við fyrra e-mailið mitt en það verður að hafa það.
afskaplega sár mamma engils hér.
með vinsemd og virðingu
Harpa
Svarið sem ég fékk var að ég held bara við Svari 1:
Sæl kæra Harpa
Við höfum fengið margar ábendingar vegna þessa og meðal annars nú frá skólayfirvöldum í landinu sem ætla að loka fyrir aðgang að barnalandi ef við förum ekki eftir almennum siðareglum. Það myndi þýða það að allt 20.000 manns hefðu ekki lengur aðgang að barnalandi. Þess vegna verðum við að grípa til þessara aðgerða. Það var ekki á dagskrá hjá okkur að loka þessum síðum enda hefðum við þá gert það strax. Sjálf hef ég mikla trú á því að það hjálpi fólki að skrifa sig í gegnum sorgina og hef skrifað grein um slíkt. Það er líklega ekkert eins erfit í þessu lífi og missa barnið sitt eða þurfa að horfa á það í veikindum sínum máttvana. Sjálf eigum við Þór maður minn 2 litla stráka, barnaland varð einmitt til í kjölfar mjög alvarlegra veikinda sonar okkar sem barðist fyrir lífi sínu á sínum tíma.
Með von um skilning á okkar stöðu.
Sigríður Guðmundsdóttir
Stofnandi barnalands.is
BA- sálfræði / cand.psych. stud.
Restitution research
Aarhus Universitet
Psykologisk Institut
Rosasniðugt að setja öll heitin sem þú berð með sko það gerir mann svo miklu gáfaðri eða eitthvað...
Ég svaraði:
Ég sendi ykur líka annað e-mail á barnaland@barnaland.is
Þetta fann ég líka í notkunarskilmálunum YKKAR:
4.grein
Barnaland.is tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu, ófjárhagslegu eða andlegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna meiðyrðinga eða í tengslum við gerð og notkun á vefsíðunni eða umræðuhorni barnalands.
Eruð þið ekki komin í mótsögn við ykkur sjálf?
ég er langt frá því sátt. Þú getur t.d. lesið gestabókina á síðu Perlu Dísar, þar sem eingöngu er talað um hversu fallegar myndirnar eru. Þeim sem kvarta geturu bent á notkunarskilmálana.
Ertu búin að lesa hitt e-mailið frá mér?
kv Harpa
Síðan eru þau farin að deleta fullt af umræðum einni frá honum munda.is svo og sinni eigin umræðu þar sem ég skellti inn svarinu "þið eruð fífl", Þá umræðu settu þau aftur inn án svarsins míns hún er á barnalandi undir "til ykkar"
Mér er svo misboðið. Ég sit í alvörunni og skelf. Að það skuli í alvörunni vera til svona yfirborðskennt fólk.. Afhverju banna þau ekki síður hjá veikum börnum já eða fötluðum?
ég er með tárin í augunum, ég hef ALDREI fengið svona framkomu áður. Ef barnið þeirra hefði nú dáið hvað þá? Hefðu þau þá bara lokað barnalandi.is?
Þetta er bara peninga plott. þau fá minni auglýsingatekjur ef 20.000 færri skoða síðuna því að það væri búið að loka fyrir hana. Og já þá skulum við bara loka á tilfinningar annarra. Mér er orða vant, það skeður nú með eindæmum sjaldan.
Held að þau tapi meiru á því að loka fyrir þessar síður. Dauðin er það sem eina sem við getum ekki sloppið við, eigum við ekki bara að sætta okkur við það?

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim