Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

fimmtudagur

í smáralind...

Í dag voru mini vísitölufjölskyldan í smáralindina... Við uppgötvuðum s.s. á leiðinni þangað að við erum vísitölufjölskylda, er það ekki annars pabbi, mamma og 2 börn stelpa og strákur :)

Þvílík snilld að vera lítill... ég gat keypt buxur á alla fjölskyldunna í Zöru í BARNAdeildinni.. Mjög hagkvæmt þar sem stk kostaði einhverjar 1200 kr... mæli með því ;)

Einnig hittum við gæðablóðin Geirakotshjón. Við skoðuðum heilan helling og fórum á Pizza Hut namm... það var vibba löng biðröð á Burger King svo við nenntum ekki þangað.

Er eitthvað voða löt í dag, held ég sé farin að sakna kallsins fyrirfram en hann er að vinna alla helgina *grát*

bið að heilsa í bili..

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim