Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

og lífið gengur...

Ótrúlegt hvað þetta gengur vel... ég er allveganna ekki ennþá orðin þreytt á að vera heima vinnandi! Ekki ennþá, sjáið þið til!

Í dag umsnéri ég stofunni minni... Notaði hann Bigga minn "viljalausa afarsamþykka verkfærið mitt" til að hjálpa mér :) þetta kemur bara helvíti vel út núna ;)

Í kvöld mat var svo reykt ýsa, N.b. í gær var saltkjöt og í fyrradag lifrarpottréttur... er maður orðinn gamall eða?, rosalega góð, í eftirmat var svo karamellubúðingur með rjóma :)

Finnst ykkur ég ekki húsmóðurleg?

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim