Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

föstudagur

hemm, hemm!

Spurning um að blogga smá, enda ekkert lítið í fréttum....

Síðasta vor útskrifaðist Biggi minn sem kokkur og þegar okkur bauðst starf á Hótel Rangá, ákváðum við að flytja í sveitina til tengdó, pabba Bigga og stjúpu og hófum störf þar um mánaðrmótin maí/júní. Það var svakalega keyrsla á okkur í sumar, við unnum eins og brjálæðingar, enda bilað að gera. Að sjálfsögðu bauðst okkur svo áframhaldandi starf :) Sem við þáðum þegar við fengum húsnæði á Hvolsvelli.

Núna búum við sem sé að Stóragerði 19 Hvolsvelli, ská á móti Hvolsskóla sem Darri gengur í, ja eða hjólar alla 20 metrana! Honum líst vel á skólan hefur eignast nokkra vini og svona. Húsið sem við leigjum er 136 fm EINBÝLISHÚS með 55 fm bílskúr! Það eru 4 svefnherbergi, stór stofa, hol, sólstofa, 2 baðherbergi, þvottahús/inngangur og forstofa. 1 svefnherbergið og annað baðherbergið eru við forstofuna og við leigjum það út til pars sem vinnur hjá okkur. Þau heita Jacek og Monika og eru pólsk. Yndisleg í alla staði og þegar við Biggi erum bæði að vinna á kvöldin þá passar Monika gormana fyrir okkur, frábært fyrirkomulag, þar sem ég vinn bara kvöldvaktir og hún bara dagvaktir!

Darra finnst lífið frábært, hann hjólar útum allar trissur, heimsækir vini, leikur sér og hefur það ótrúlega gott. Er farinn að vilja lesa með mér á hverjum degi o.s.frv. Hann fór í birkifrætýnsluferð í dag og fannst það sko, ekki mjög gaman... En hann er nefnilega mjög öflugur týnari, bæði í kræki og rifsberjum.

Alexander er ótrúlega hrifinn af húsinu okkar líka, sérstaklega því að í Stóragerði 1 er leikskóli og því leikvöllur. Honum finnst það mjög töff og vill alls ekki labba þar framhjá án þess að stoppa! Við skoðuðum svo dótið á heilsugæslunni og fórum í 18 mánaða skoðun og sprautu í dag og litla barnið mitt er 83 cm og 12 kg! Hann skilur allt sem maður segir og segir helling, hann sagði m.a. lækninum að "ættusssu" þegar hann var að pota í hann. Hann heilsaði svo hjúkkunni með Hæ og kvaddi með Bæ og sagði henni að koma og "sjáu". Hann baular líka eins og verðlaunakú (eða kálfur) eftir sumarið og er mjög pró í öllum dýrahljóðunum! Gaggar mjög fagmannlega líka. Mest notuðu orðin hans eru samt by far, Etti (ekki), Ha?, Nei, Búið og ættussu (Hættu þessu).

Við hjónin höfuð það fínt í vinnunni að öllu jöfnu, nóg að gera og mikil gleði. Svo er auðvitað dásamlegt að vera með upphitaðan bílskúr í svona veðri (það er líklega nálægt 10 cm jafnfallinn snjór núna...) og já, við erum líka með upphitað gróðurhús!!! Nú þarf ég bara að draga fram prjónanna mína og þá líður mér fullkomlega vel!

Nóg í bili.

Harpa Hvolsvellingur.

sunnudagur

Ég á afmæli í dag!

jejjjjj! Var að vinna áðan og það kom strákur sem varð þrítugur í gær (sem sé 19.) Hann bauð mig velkomna í hóp eldri borgara!

Ég fékk söng, 2 sinnum, 2 sneiðar af súkkulaði köku, annar diskurinn var skreyttur með hjarta *awwww* og helling af stjörnuljósum. Þar sem kokkastrollan með uppvaskaran í fararbroddi kom syngjandi útúr eldhúsinu framm í sal, fékk ég slatta af hamingju óskum frá kúnnunum líka. haha!

Svo minnz er orðin eldri borgari, eða nákvæmlega klukkan 6.50 í fyrramálið! Þrítug blessað unglambið.

kveðja, afmælisstelpan Harpa

Vika óboðinna og innilega óvelkomnara gesta!

Já, haldiði ekki, bara blogg #2 á einni viku!

Það vildi svo vel til að ég póstaði afmælispóstinum strax eftir miðnættið. Að kvöldi afmælisdagsins fékk afmælisbarnið sína fyrstu gubbupest, jej! Hann sofnaði svo í fangi föður síns (sem var líka með veikan maga) um miðnættið en þá fékk mamma hans, aka ég svona skemmtilega í magan, elskulegar svona upp og niður pestir, ha?

Á fimmtudagskvöldið vildi svo skemmtilega til að hér fannst njalli frændi! Litla barnið aftur.

Mjög skemmtilegt eða þannig, ég sit hérna löðrandi í sápu og sótthreinsi og skrúbba sem mest og best! Þvílíkur viðbjóður! Hrollur, ógeð, ógeð ógeð! Búin að éta einhverja litarefnis, msg töflur (Biggi segir að það sé msg í þeim sko)

Mæli ekki með þessu, hvorugu og það síst í sömu vikunni. Þarf sannarlega að detta í það fljótlega til að jafna á þessu!

kveðja, Harpa.

þriðjudagur

Heilt ár liðið!

Fyrir ári síðan:


Að hugsa sér! Liðið heilt ár frá því að litla dýrið mitt fæddist!

Svona lítur hann út núna:


Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!

kær kveðja, afmælisstráksmamman

p.s. til hamingju með daginn Brynja!

miðvikudagur

Beðið eftir tönn!

Aldrei grunaði mig að tennur gætu böggað mig svona. Darrinn fór í gegnum allar sínar tanntökur nánast án þess að finna fyrir því. Svo er nú ekki farið með litla manninn á heimilinu. Tanntakan reynist honum afar erfið! Og þá sérstaklega tímabilið frá því að sú fyrri í parinu kemur upp og þar til sú seinni kemur. Hann fékk fyrstu tennurnar(neðri framtennur) um réttir og svo kom ekkert meira fyrr en í lok nóvember. Þá komu 2 með rúmlega viku millibili, hliðartennurnar, sitthvoru megin við framtennurnar í efrigóm. Mér fannst það agalega fyndið, að eiga svona vampírubarn. Nema að sú seinni var ekki fyrr komin niður en önnur framtönninn ruddist fram! Og daginn sem seinni framtönninn kom niður (nánar tiltekið 21. desember) kom hliðartönn í neðrigóm! Síðan þá hef ég beðið spennt eftir hinni og ég bíð enn! Sá hvítan blett í gómnum áðan og barnið sefur, kannski hún hafi laumað sér upp á meðan ég burstaði í honum tennurnar?

Að öðru merkilegu. Á sunnudaginn ljáði ég vinkonunum mínum heimilið undir kynningu á taubleium. Dásamlegt að horfa á ríflega tug kvenna káfa með unaði á taubleium og öðru girnilegu stöffi frá henni Eydísi minni í www.draumafaeding.net og svo sveiflaði hún Anna Jóna hjá skessuleikur.com krílunum um í sjölum og mei tai.

Mig langar í ALLAR bleiurnar hjá Eydísi. Hrikalega flottar. Svo mæli ég eindregið með taubindunum hjá henni, fylgist vel með því ég veit að hún fær bráðlega sendingu með hrikalega flottum bindum. Ef þú smellir hér sérðu úrvalið af þeim http://www.draumafaeding.net/vefverslun/?category=10
Maður verður að hugsa vel um píkuna á sér og klæða hana vel hohoho!

Harpa taukelling!

mánudagur

Gleðileg áramót

og megi nýtt ár bjóða ykkur gleði, hamingju, ást og yndi. Þakka liðnar stundir, á netinu sem í raunheimum.

Gangið varlega um gleðinar dyr :)

Áramóta kveðja Harpa og fjölskylda.

Prjónamont ones again!




Þetta er sem sé fína fína samfellan sem tók mig langan tíma að gera, eða, ég tók mér langa pásu á miðri annari erminni vegna tanntöku, svefnleysis og fleira. Ákvað svo að klára hana á þessu ári og rumpaði henni af núna milli jóla og nýárs.

Mér finnst nú bara nokkuð flott! gormurinn er reyndar bleiulaus undir henni þarna... en hún passar fínt yfir bleiu líka sko :þ

föstudagur

Skíðandi skæruliði, skellihlátur og fleira

Já, þar hafiði það! Litli gormurinn skreið af stað áðan, beinustu leið að körfunni sem kisurnar leggja sig að jafnaði í, og reisti sig þar upp á hnén. Það verður ekki lognmolla á mínu heimili á næstunni. Keypti mér tölvumínútur með fréttablaðinu, sem er nú að komast í endurvinnanlegt form á gólfinu. Ótrúlegt hvað tveir gormar geta verið öflugir í dagblaða niðurrifi.... Spurning um að föndra jólagjafirnar úr pappamassa í ár!

Annars var jarðarförin í dag, ofboðslega falleg. Æðislegir sálmar og pínu réttafílingur þar sem "Blessuð sértu sveitin mín" var sungið án undirspils. Í erfidrykkjunni var margt um manninn, og m.a. var hún Jóna barnapían mín þar. Hún passaði mig þegar ég var lítil (og systur mínar líka, held samt að ég hafi þurft mesta pössun....). Darranum fannst mjög ólíklegt að þetta væri satt, það stóðst hreinlega ekki að mamma hans hefði verið með barnapíu. Sérstaklega þar sem það eru hans æru og kýr þessa daganna að fara í pössun, hann veit ekkert skemmtilegra!