Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Vegna mikillar eftirspurnar...

Þá ætla ég að skrifa um þetta stór merka bréf sem ég skrifaði um daginn :)

Allaveganna þá var ég eitthvað að gramsa inná rsk.is og m.a. var ég að reikna út barnabæturnar okkar fyrir og eftir sambúð, erum í sambúð bara svona til að hafa það á hreinu!

Allaveganna (er þetta uppáhald orðið mitt eða?) þá komst ég sem sé að því að par sem er með ÓSKERTAR bætur og því laun undir 1.440.000 (ca) er með 80 þús minna í barnabætur á ári en einstætt foreldri með ÓSKERTAR barnabætur og því laun undir 720.000 (ca) ATH helmingi minna uppá staf!!!

Þetta fannst mér MJÖG asnalegt.. því að einstæða foreldrið fær mikið lægri leikskólagjöld t.d. það á forgang á íbúðir í félagslegakerfinu (þar sem par á litla sem enga möguleika skilst mér), það fær líka hærri húsaleigubætur osfrv...

Þannig að ég sendi félagsmálaráðuneytinu bréf um þetta og vonast eftir svari :)

bið að heilsa í bili :)

föstudagur

Reminder

Muna að skrifa um bréfið sem ég skrifaði..... :) Hef ekki tíma núna og kallinn er að draga mig í bólið :P

fimmtudagur

Datt niður á þetta en lesið líka það sem ég skrifaði í síðustu færslu..

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið , svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur. Kannski opnast dyr hamingunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum , en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast. Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar . Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það , en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það . Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti .. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást ; bíddu þangað til ástinn vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki , skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta . Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður , klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum , en það getur tekið líftíð að gleyma einhverjum. Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa , vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt . Ekki fara eftir útliti , það getur blekkt . Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið..Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.

Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru
brosandi.

Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í
kringum þig
grátandi.


Ekki amalegt og svo satt

Góðar stundir.

Stend ekki við neitt þessa daganna híhí

jamm og jæja.. var ég ekki eitthvað að bulla um að vera duglegri við að blogga? *hóst**hóst*

Reyndar er mikið búið að vera að gera mikil vinna bæði hjá mér og Birgi mínum :) Svo allskonar snatt útum allt!

En þetta var það sem mig langaði að segja um það sem ég skrifaði í denn sem mest um, þ.e. lokunina á síðu Perlu Dísar:

Stundum óska ég þess samt að þetta hefði ekki gerst á þessum tíma, aðeins rúmum 2 vikum eftir að Perla Dís fæddist. Ég var náttúrulega langt frá því að vera búin að jafna mig, hvorki andlega né líkamlega og við þetta auka áreiti varð ég bara úrvinda! Eins kraftmikil og ég er vanalega. Ég hefði gjarnan viljað gera meira úr þessu ég hafði bara hvorki orku né þrek til þess á þessum tíma. Ég hefði t.d. ef þetta hefði gerst í dag, farið í t.d. Ísland í dag, Fólk með Sirry og Kastljós þess vegna því að feimnin er ótrúleg og þó að þetta hafi gert gott og opnað umræðuna er stórt verk óunnið. Ég veit reyndar ekki hvort ég væri til í að koma sjálf fram en sögunu mína fengju þau hiklaust.

Í dag tel ég mig komna í ágætis ástand, það þakka ég reyndar líka því að ég fór í orkupunktanudd sem gerði ekkert smá gott ég gjörsamlega sveif út, og mæli eindregið með ef þú hefur tök á að komast í svoleiðis að skella þér, kostar reyndar 4000 kr EN vá hvað það var þess virði!

Þegar ég er komin í svona gott ástand andlega hef ég mikið spáð, ætli ég hefði gert annað, svarað þeim öðruvísi, gert eins og þau báðu osfrv en svarið er alltaf það sama. Ég hefði aldrei sagt já og amen ég hefði jafnvel orðið verri viðureignar ef eitthvað er. Mér finnst stjórnendur barnalands.is ekki hafa brugðist rétt við í þessu máli LANGT Í FRÁ!

hehe ég verð bara reið við að tala um þau... :)En allaveganna smá update af því hvað mér finnst í dag um þessar "aðgerðir" þeirra! Ég hefði ekki farið útí þetta til að fá athygli eins og ég veit að einhverjir hugsa, nei ég hefði farið útí þetta til að gera fólki grein fyrir því að þetta gerist, börn deyja líka í móðurkviði og vitið hvað það MÁ tala um það og það ÞARF að leyfa foreldrunum og öðrum fjölskyldumeðlimum að tjá sig um það!! Fólk þarf ekki að hlaupa í felur það þarf ekki að fara hjá sér, hvað geriru ef einhver segir þér að mamma/pabbi/systkini hafi dáið? Flestir votta samúð og spyrja svo hvað hafi komið fyrir. Þegar fólk spyr mig hvernig gangi með börnin mín 2 (jamm er ennþá að fá þannig spurningar) og ég segi að stelpan mín hafi því miður fæðst andvana frýs fólk í 99,9% tilvika, það gerir það ennþá erfiðara fyrir mig að segja frá þessu og sumum hef ég hreinlega sleppt við að segja það, þ.e. ef fólk spyr hvað fékkstu t.d. þá hef ég 1-2 sagt bara stelpu stutt og laggott og svo jafnvel rokið í burtu... Ég veit að það finnst fleirrum en mér erfitt að segja þetta og fleirri hafa logið en ég. Held að flestum sem missa ung börn finnist erfitt að segja frá því einmitt útaf viðbrögðunum, manni líður eins og maður slái fólk með blautri tusku í andlitið!

Annars er bara fínt að frétta.. síminn má ekki hringja þá eru ormastrumpur búinn að gera eitthvað af sér.. Hann getur verið hræðilegur þessi elska :) Eins og hann er nú yndislegur samt :)

Kannski (lofa samt engu) það fari að vera styttra á milli blogga :) Nú fer að róast í vinnunni og meira skipulag að komast á heimilishaldið :)

p.s. varð brjáluð áðan og sendi póst til félagmálaráðuneytisins... hehehe ein í ham, segi kannski frá því á morgun :)

Góðar stundir