Skíðandi skæruliði, skellihlátur og fleira
Já, þar hafiði það! Litli gormurinn skreið af stað áðan, beinustu leið að körfunni sem kisurnar leggja sig að jafnaði í, og reisti sig þar upp á hnén. Það verður ekki lognmolla á mínu heimili á næstunni. Keypti mér tölvumínútur með fréttablaðinu, sem er nú að komast í endurvinnanlegt form á gólfinu. Ótrúlegt hvað tveir gormar geta verið öflugir í dagblaða niðurrifi.... Spurning um að föndra jólagjafirnar úr pappamassa í ár!
Annars var jarðarförin í dag, ofboðslega falleg. Æðislegir sálmar og pínu réttafílingur þar sem "Blessuð sértu sveitin mín" var sungið án undirspils. Í erfidrykkjunni var margt um manninn, og m.a. var hún Jóna barnapían mín þar. Hún passaði mig þegar ég var lítil (og systur mínar líka, held samt að ég hafi þurft mesta pössun....). Darranum fannst mjög ólíklegt að þetta væri satt, það stóðst hreinlega ekki að mamma hans hefði verið með barnapíu. Sérstaklega þar sem það eru hans æru og kýr þessa daganna að fara í pössun, hann veit ekkert skemmtilegra!
