Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

jeminn eini komin tími á blogg!!!!

Ójá... vá hvað ég er búin að vera þögul... það kemur nú ekki oft fyrir svo munið eftir þessu!!!!

Annars er bara lítið að frétta ;) lífið gengur sinn vanagang. EN með breytingum!! Jújú Biggi minn er kominn á samning og núna vinnur hann eins og bilaður og gerir það næsta mánuðinn. Næstum tvöfalt!!! jæks... Svo breytti ég orlofinu mínu þannig að ég er bara í hálfu orlofi og svo part time vinnu á móti. Sem er mér vinnu alkanum nauðsynlegt! Fínt líka því að ormastrákurinn minn er kannski ekkert að komst inná leikskóla... búhú fyrir því.

Annars var styktarfundur í síðustu viku. Kona sem er félagsráðgjafi og hefur átt andvana fætt barn kom og ræddi við okkur. Hún hefur fengið að heyra það vegna þess að hún er með mynd af syni sínum uppá vegg... jemin eini hvað fólk getur verið tillits laust!!! Hún talaði meðal annars um síðuna hennar Perlu Dísar okkar!!

Svo var annar styrktarfundur í kvöld. Í þetta skiptið var kvensjúkdómafræðingur. Mjög gaman að því. Næst verður svo svona lokastund og báðir hóparnir saman. Já Báðir því að það eru 2 hópar og eru foreldrar 4 barna í hvorum hóp fyrir sig!

Svo er ég búin að vera vinna slatta, kemur svona í rispum. Var að vinna alla daganna í síðustu viku hjá HB 5 tíma á dag og svo 2 tíma á föstudaginn. Var svo á gh á fimmtudags og föstudagskvöld og svo hjá HB aftur á laugardagnóttina. Voða fínt að vinna á kvöldin. þá hef ég daginn með KD :) Síðan er ég bara lítið sem ekkert að vinna fyrr en um miðjan maí :) Ætla að skreppa í sveitina til pabba um helgina og vera eitthvað. aðstoða hann í sauðburðinum :)

Annars er bara svaka róleg heit hérna... Ef einhvern langar að gefa mér síðbúna afmælisgjöf þá langar mig í eldhúsinnréttingu... Finnst ykkur ég kröfuhörð? :P

Bið að heilsa í bili

og það er komin ný könnun...

Allir að taka þátt!!!!!!!!!!!!!!!!

hikst, hikst

Neibb ég er ekki alki... er bara að æfa mig fyrir fegurðarsamkeppnina á miðvikudaginn og árshátíðina á laugardaginn!!! Jámm þokkalega bilað að gera í djamminu og maður ekki í sínu besta formi eftir 2 meðgöngur og bara 3 mánuði í "frí" á milli brjóstagjafar og óléttu ussssss ;) Svo við Brynja ákváðum að fá okkur öl í kvöld... bara pínu ;)

En já svo kom ég heim og er núna búin að vera í ca klst að lesa afskaplegar heitar umræður á barnaland.is. Þar er verið að dissa unga móður sem á 2 stráka samfeðra og er "kannski" ólétt eftir annan mann, þau eru saman búin að þekkjast lengi osfrv... Ef hún er ólétt, þarf hún virkilega á því að halda að hún sé kölluð félópakk? Hún var jú að vinna þangað til hún varð ófrísk af yngri stráknum... sagði upp því hún flutti næstum því eins langt og hún komst í burtu frá vinnustaðnum og er bíllaus. Svo fær hún ekki vinnu. Er hún þá félópakk? því að hún hefur ekki fengið vinnu í hvað? 2-3 mánuði? fyrsta mánuðinn fékk hún styrk frá féló því að hún fékk ekki atvinnuleysisbætur strax.. því hún sagði upp hún var nefnilega ekki rekin!

Þetta kerfi er náttúrulega pretty fokked upp mikið vildi ég að ég hefði vitað af þessum félóstyrk þegar ég var atvinnulaus og á biðtíma fyrir rúmu ári síðan... ástæðan var reyndar uppsögn (af minni hálfu) vegna óhentugsvinnutíma... ég gat bara ekki farið að vinna 12 tíma vaktir með rétt rúmlega 6 mánaða gamalt kríli... so sorry!! Getur það einhver? En ég lifði á visa í staðinn, mömmu og smá aur sem ég átti.. ekki að það hafi verið auðvelt né gaman!

Nú er ég manneskja sem hef aldrei þegið félóstyrk nema viðbótarlánið (kallast það styrkur? Maður borgar það jú niður). Var einstæð móðir á bótum, fékk vinnu, varð ófrísk skipti um vinnu á meðgöngunni (ójá það er til fólk sem ræður til sín ófrískar konur) og missti barnið mitt síðan reyndar. En ég tel félóstyrki einmitt vera fyrir fólk sem þarf að koma undir sig fótum, hvort sem það er einstaklingur, í sambúð, með 1, 2 eða 3 börn.. En já mér finnst að féló eigi að vera tímbunin styrkur.. fólk á ekki að geta legið á félóstyrk í marga tugi ára!

Það gefur jú augaleið að 21 árs kona með 2 börn og 1 á leiðinni er ekki "ideal" starfskraftur.. hún hefur í fyrsta lagi enga ofboðslega reynslu... búin að vera í fæðingarorlofi í ár. En hún á rétt á tækifæri og það á ekki að taka það af henni!! Hún á rétt á því að geta sannað sig, eins og helv**** dópistarnir sem dópa börnin sín frá sér!! Hún á meiri rétt en þeir finnst mér!!

Einu sinni sagði afi minn, þegar hann varð vitni af mér opna launseðilin og blóta skattinum í sand og ösku, einn daginn verður glöð yfir skattpeningunum þínum, daginn sem þú verður gömul og þreytt, daginn sem þú þarf að fara í aðgerð vegna krankleika sem háir þér mikið og þú færð það frítt!! Afi minn er stundum pínu klár en eins og við öll þá eldist hann Aging Man

Þeir hlutir sem ég hef mest lært af eru þessi setning hans afa míns hér að ofan og setning sem ég sagði við hana ömmu mína einu sinn þegar hún lá á spítala. Við vorum sem sé eitthvað að ræða um lífið og tilveruna og hún sagði að oft væri lífið bara svo erfitt, hún var þarna gömul nánast rúmföst kona sem hefur gengið í gengum margt: er þýsk, lenti í seinni heimstyrjöldinni, flutti til Íslands til að flýja atvinnuleysið úti, þá með eina dóttir, giftist, varð ólétt, eignaðist 3 drengi ekki samt í einu, en missti allaveganna 2 fóstur, missti sonarson 17 ára gamlan, missti sonardóttur 18 ára gamla. Það er jú margt sem lenti á sálinni hjá henni. En þegar það hrökk upp úr mér: Amma veistu... að þó að lífið sé ekki alltaf gott, þá gera erfiðu dagarnir þá góðu ennþá betri. Og gamla konan var alveg sammála mér með það.

því þannig er það... erfiðleikarnir kenna okkur að meta það góða í lífinu, ástvinina sem við getum varla verið án, velferðarkerfi sem þrátt fyrir allt sér um flest fyrir okkur ef við þurfum osfrv...

Er ekki lífið yndilegt?????????????? Mér finnst það, þrátt fyrir allt!!!

mánudagur

Þegar litla systir...

...er farin að lesa bloggið mitt þá verð ég nú að vera duglegri að skrifa *roðn*

Annars er bara búið að vera lítið að gerast.. mamma og Trausti komu í mat til okkar á laugardaginn og það var rosalega gaman. Kristófer var alveg í essinu sínu, svo gaman að hafa þau í heimsókn. Well allaveganna þá var hann kominn í náttföt og alles þegar að þau fóru heim... Hann lét það samt ekki stoppa sig, skellti sér í stígvélinn utan yfir og út á stigapall. Svo rölti hann bara af stað niður tröppurnar og dróg ömmu sína með sér ;) Og varð alveg snældu vitlaus þegar að mamma hans kom og tók hann :) alveg snar ;)

Svo voru þeir bara 2 heima félagarnir í gær, ég var aðeins að hjálpa HB yfir daginn og svo vann ég fyrir Örn í gærkveldi. Mér líður mun betur við að komast aðeins út. Reyndar eru ´svo margir fastakúnnar á GT sem vissu að ég var ófrísk og það er ekkert æðislegt að skella þessu framan í þá.. Þeir eru nú samt svo miklar dúllur ;)

Í dag ætla ég að vera mamma nr 1,2, og 3 fara út að labba og svo jafnvel kaupa páskaegg... ;) Handa mér og Bigga, Maggi ætlar að gefa Kristófer egg, ég bað bara um það stærsta :S þá get ég dregið hann að landi :)

blessó klessó þangað til næst

fimmtudagur

Svo dugleg í dag!!!

Ójá alveg massa dugleg, þreif hátt og lágt (gleymdi reyndar hillunni hans KD og var minnt á það...) með aðstoðarmanninn með mér ;) Það eru sko tvöföld þrif.. smá lýsing:
*Setur ryksuguna í samband og kveikir á henni
*Ryksugar ca 1 fm (í mestalagi)
*Ryksugunni er þá kippt úr sambandi af aðstoðarmanninum
*Þá fer maður og þurrkar af inná baði
*Þá heyrir maður ryksugunni stungið í samband aftur...
*Aðstoðarmaðurinn rífur skaftið af og fer að ryksuga...
*Ef maður er fyrir er maður ryksuguður við mikla kátínu aðstoðarmannsinns
*Ef maður hefur verið svo séður að forða sér inná bað að þrífa þá gefst aðstoðarmaðurinn upp
*Aðstoðarmaðurinn nær sér í 1 stk puzzle og 4 bíla og leggst ofan á ryksugurörið í leik...
*Þá tekur maður rörið af og ryksugar kattahár úr sófa og af stólum
*Aðstoðarmaðurinn keyrir af rörinu
*Þú "stelur" rörinu og byrjar aftur á gólfinu
*Byrjið aftur efst og sjáið hvernig það er hægt að vera heilan dag að ryksuga og þrífa eina 75 fm íbúð en bara 30 mín að skúra hell skítuga gólfið!!!

Nú spyr einhver sig "Afhverju bannar hún barninu þetta ekki" og svarið er einfalt, Hann er að læra og hann lærir ekki að ryksuga, þurrka af (jamm hann er voða duglegur við að dusta af neðstu hillunum), elda, pissa í wc osfrv ef hann færi ekki að vera memm... Ef ég leyfi þessu að vera á hans forsendum og "play along" held ég að það séu mun meiri líkur á því að hann verði jákvæðari á þetta ALLT í framtíðinni (ein sem ætlar að vera ÆÐISLEG tengdó sem kenndi syninum að þrífa og elda, hehe)

Ég er samt ekki anti bannisti sko ;) Hann má t.d. ekki klifra uppá eldhúsborð (sem er sko mest spennandi hlutur í heimi) eða uppí glugga... Það er bara svo oft sem að við getum farið aðra leið enn að banna og skamma og banna og skamma. Hann t.d. var nokkrum sinnum búinn að setja baðið á flot.. það er svo mikið rennsli úr kaldavatns krananum að það er ekki í séns í helvíti að það renni allt niður... og ég bannaði og skammaði og bannaði og skammaði... hey núna er ég búin að skrúfa fyrir kalda vatnið þannig að það kemur bara pínu buna og vitiði? Þetta er bara ekkert gaman lengur... núna fer hann bara í vaskinn þegar hann er þyrstur ;) Enda sjálfsbjargarviðleitnin að drepa hann... úff það er ekkert smá erfitt að vera svona pínu lítill og hafa ekki tæknina til að: hella í glas, skera matinn sinn, smyrja brauðið sitt, reima skónna, renna úlpunni, hneppa, osfrv... ekkert smá pirrandi!! Og svo er þetta fullorðna fólk svo skrítið það er alltaf að skamma mann...

Enn það er líka svo gaman að fá að vera þess heiðurs aðnjótandi að sjá barnið sitt taka þessi stóru þroskaskref, bara það að horfa á hann pissa 3 dropum í wc er eins og einhver hefði gefið mér tunglið og sólina, það að sjá gleðina í augunum þegar maður hrósar honum fyrir að vera svona duglegur að hjálpa til þegar hann "loksins" ryksugar stólin í 30 sek og lítur svo á mann bara til að tékka hvort hann fái nú ekki smá bros svo heldur hann áfram að ryksuga stólinn í aðrar 30 sek... Að sjá hann hlæja sig máttlausan yfir svipnum á mér þegar að hann ryksugaði mig... svo fyndinn Laugh og sjá hann hlægja þegar ég greip hann í fangið og fór að dansa við hann, ekkert lítið gaman sko

Á svona stundum er ég svo glöð yfir því að eiga þá allaveganna eitt barn, ég get átt fleirri í framtíðinni (og geri það örugglega) það er því miður ekki öllum sem hlotnast sú hamingja.

einkunarorð dagsins í dag voru: jákvæðni, samstarfvilji og nægjusemi.

oooooguh mig langar ekkert að fara að vinna aftur ;) það er svo gaman að vera heima ;)... minnið þið þig á þetta þegar ég fer að væla "mér leiðist"...