hikst, hikst
Neibb ég er ekki alki... er bara að æfa mig fyrir fegurðarsamkeppnina á miðvikudaginn og árshátíðina á laugardaginn!!! Jámm þokkalega bilað að gera í djamminu og maður ekki í sínu besta formi eftir 2 meðgöngur og bara 3 mánuði í "frí" á milli brjóstagjafar og óléttu ussssss ;) Svo við Brynja ákváðum að fá okkur öl í kvöld... bara pínu ;)
En já svo kom ég heim og er núna búin að vera í ca klst að lesa afskaplegar heitar umræður á barnaland.is. Þar er verið að dissa unga móður sem á 2 stráka samfeðra og er "kannski" ólétt eftir annan mann, þau eru saman búin að þekkjast lengi osfrv... Ef hún er ólétt, þarf hún virkilega á því að halda að hún sé kölluð félópakk? Hún var jú að vinna þangað til hún varð ófrísk af yngri stráknum... sagði upp því hún flutti næstum því eins langt og hún komst í burtu frá vinnustaðnum og er bíllaus. Svo fær hún ekki vinnu. Er hún þá félópakk? því að hún hefur ekki fengið vinnu í hvað? 2-3 mánuði? fyrsta mánuðinn fékk hún styrk frá féló því að hún fékk ekki atvinnuleysisbætur strax.. því hún sagði upp hún var nefnilega ekki rekin!
Þetta kerfi er náttúrulega pretty fokked upp mikið vildi ég að ég hefði vitað af þessum félóstyrk þegar ég var atvinnulaus og á biðtíma fyrir rúmu ári síðan... ástæðan var reyndar uppsögn (af minni hálfu) vegna óhentugsvinnutíma... ég gat bara ekki farið að vinna 12 tíma vaktir með rétt rúmlega 6 mánaða gamalt kríli... so sorry!! Getur það einhver? En ég lifði á visa í staðinn, mömmu og smá aur sem ég átti.. ekki að það hafi verið auðvelt né gaman!
Nú er ég manneskja sem hef aldrei þegið félóstyrk nema viðbótarlánið (kallast það styrkur? Maður borgar það jú niður). Var einstæð móðir á bótum, fékk vinnu, varð ófrísk skipti um vinnu á meðgöngunni (ójá það er til fólk sem ræður til sín ófrískar konur) og missti barnið mitt síðan reyndar. En ég tel félóstyrki einmitt vera fyrir fólk sem þarf að koma undir sig fótum, hvort sem það er einstaklingur, í sambúð, með 1, 2 eða 3 börn.. En já mér finnst að féló eigi að vera tímbunin styrkur.. fólk á ekki að geta legið á félóstyrk í marga tugi ára!
Það gefur jú augaleið að 21 árs kona með 2 börn og 1 á leiðinni er ekki "ideal" starfskraftur.. hún hefur í fyrsta lagi enga ofboðslega reynslu... búin að vera í fæðingarorlofi í ár. En hún á rétt á tækifæri og það á ekki að taka það af henni!! Hún á rétt á því að geta sannað sig, eins og helv**** dópistarnir sem dópa börnin sín frá sér!! Hún á meiri rétt en þeir finnst mér!!
Einu sinni sagði afi minn, þegar hann varð vitni af mér opna launseðilin og blóta skattinum í sand og ösku, einn daginn verður glöð yfir skattpeningunum þínum, daginn sem þú verður gömul og þreytt, daginn sem þú þarf að fara í aðgerð vegna krankleika sem háir þér mikið og þú færð það frítt!! Afi minn er stundum pínu klár en eins og við öll þá eldist hann
Þeir hlutir sem ég hef mest lært af eru þessi setning hans afa míns hér að ofan og setning sem ég sagði við hana ömmu mína einu sinn þegar hún lá á spítala. Við vorum sem sé eitthvað að ræða um lífið og tilveruna og hún sagði að oft væri lífið bara svo erfitt, hún var þarna gömul nánast rúmföst kona sem hefur gengið í gengum margt: er þýsk, lenti í seinni heimstyrjöldinni, flutti til Íslands til að flýja atvinnuleysið úti, þá með eina dóttir, giftist, varð ólétt, eignaðist 3 drengi ekki samt í einu, en missti allaveganna 2 fóstur, missti sonarson 17 ára gamlan, missti sonardóttur 18 ára gamla. Það er jú margt sem lenti á sálinni hjá henni. En þegar það hrökk upp úr mér: Amma veistu... að þó að lífið sé ekki alltaf gott, þá gera erfiðu dagarnir þá góðu ennþá betri. Og gamla konan var alveg sammála mér með það.
því þannig er það... erfiðleikarnir kenna okkur að meta það góða í lífinu, ástvinina sem við getum varla verið án, velferðarkerfi sem þrátt fyrir allt sér um flest fyrir okkur ef við þurfum osfrv...
Er ekki lífið yndilegt?????????????? Mér finnst það, þrátt fyrir allt!!!

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim