vælivælivæli
já, eftir að hafa fengið skilaboð í gestabókina mína frá henni Svölu www.folk.is/svalah/ í gær las ég alla síðunna þeirra. Kristófer fæddist rétt áður en Perla Dís. Ég frétti af honum að mig minnir daginn áður eða á fimmtudeginum. Hann var mjög mikill fyrirburi aðeins 3 merkur eða 750 gr. Núna er þetta mjög tvísýnt hjá honum og vil ég biðja alla að senda hlýja strauma til hans, hann þarf þá.
Þetta er búin að vera svona pínu "rúllettu" vika tilfinningalega séð, á þriðjudaginn fórum við á stuðningsfund. Það var gott að vita af öðrum í sömu sporum en samt ekki gott... Engum manni vill maður að hann missi barnið sitt. Þó að það sé gott að tala við fólk sem hefur lent í því.
Annars framkvæmdi ég góðverk í gær: Ég fór að vinna! Redding, en vá hvað ég hafði gott af því! Ekkert smá gott að komast í smá vinnu
Annars höfum við það fínt. Maggi kom í vikunni, og það gekk alveg stórslysalaust fyrir sig ;) Komin yfir annan hjalla þar.
síjú later

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim