Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

föstudagur

Damn MSN....

Það er svona þegar maður hefur ákveðið að gera eitthvað, eins og núna að spjalla á msn (já ótrúlegt en satt) og svo bara baraba búmm msn BILAÐ og maður er einhvern vegin lost...

Fann þetta próf á síðunni hennar Lilju og hvað haldið þið að ég sé, ótrúlegt en satt þá hef ég séð þessa mynd.

CWINDOWSDesktopFightclub.jpg
Fight Club!


What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla


Annars þá skruppum við í sveitina í gær, þvílíkt gaman :) fórum í Dalsel og svo til pabba á leiðinni heim, gleymdi reyndar að ná í dótið sem systa sendi með honum að norðan. Kristófer var frekar sáttur. Hann vildi ólmur tala við kindurnar sem voru ekkert á því að tala við hann!!! Hann kallaði reyndar öll dýrin kiskis svo sagði hann koddu og smellti í góm... hvaðan skyldi hann hafa það?

Í kvöld komu svo Sigrún og Óðinn í mat, steikt lifur ;) Það er sko ekki amalegt að koma í mat til mín... Óðinn var sko hæst ánægður og þeir félagarnir reyndar báðir!! Fannst þetta herramannsmatur og ætluðu ekki að hætta að borða..

Annars vorum við strumpur svo dugleg í dag. Þrifum heilmikið sko!! Og hann stúfur minn var sko ekkert smá duglegur að ryksuga með mér. Upprennandi húshjálp sko ;) Hann setti nú reyndar líka baðið á flot...

Og samkv syni mínum er mjög gott að borða saman: Franskar með kokteilsósu og sviðasultu... jamm þokkalega!!!

bless í bili...


0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim