Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

Kristófer er gengin út...

Já hvað haldið þið!! Hún Svava kom með hana Emilíu með sér hingað í dag og takk fyrir takk, þetta var ást við fyrstu sýn.. Kristófer kolféll enda myndardama á ferð ;)

Hann var sko ekkert smá mikið krútt, sýndi henni dótið og var bara með eindæmum GÓÐUR við hana, alveg frá a-ö. Vildi helst liggja hjá henni á teppinu og knúsast í henni.

Svo þegar að þær mæðgur voru að fara og búið var að pakka Emilíu niður, þá beygði minn sig bara yfir stólin og var sko HEILLENGI að knúsa hana og kyssa, N.B. hann kyssir bara mömmu sína.. hingað til. Þegar Svava ætlaði að taka stólin þá togaði minn sko bara á móti og hann meir að segja reyndi að opna beltið hennar!!! Alveg ákveðinn í því að daman yrði eftir!! Eftir þennan dag kvíði ég unglingsárunum MIKIÐ... *svitn*

Annars höfðum við það bara nokkuð gott í dag. Við erum samt lítið í því að taka til.. meira í því að drasla til.. ég skil ekki hvernig er hægt að dreifa dóti svona hratt og um þetta stórt svæði... þ.e. eldhús og stofu því að oftast er minnst af dóti inni hjá honum... Tilgangurinn með því var nú samt að hafa dótið þar ;)

Kallinn minn er loksins í fríi í dag og á morgun :) family time ;)

kveð að sinni...

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim