Smá misskilningur í gangi..
Mig langar að vekja athygli fólks á einu: Því að fólk er mislengi að komast yfir versta hjallan við missi. Þetta er bara staðreynd. Það getur engin sagt: gerðu svona, gerðu hin segin. Fólk verður að gera það sem það vill. T.d. Fyrirgaf Gunnar í krossinum manninum sem myrti mömmu hans. Myndir þú gera það?
Ég vill einnig segja þeim ykkar sem teljið mig vera orðljóta og leiðinlega við barnalandsstjórnendur: Ég segi þeim 1x að fara í rass og rófu í sama maili kalla ég þau 2x fífl. Það sendi ég eftir að ÞAU LÆSTU síðunni. Þau ekki ég. Það gerðu þau þar að auki innan við sólarhring eftir að þau sendu mér mail sem í stóð: Ef síðunni verður ekki læst á næstu dögum þá munum við læsa henni og blabla. Þegar þau höfðu svikið það sem þau sögðu varð ég reið MJÖG REIÐ og sendi þessi fúkkyrði til þeirra.. Þau áttu þau fyllilega skilið á þeim tíma.
Síðan á ég mjög bágt með að skilja manneskju með BA í sálfræði og verandi í sálfræði framhaldnámi sem reynir að segja manneskju í mikluuppnámi hvernig hún eigi að vinna úr sorginni og vottar henni samúð sína í e-maili nr 4. Fyrir þá sem ekki vita það þá missti ég systir mína fyrir rúmum 6 árum síðan. Þá var ég 19 ára að verða 20 og hún 18 ára. Það voru nánast sléttir 18 mánuðir á milli okkar. ÉG þekki mínar tilfinningar, ég kann að vinna úr sorginni MINNI. Mín leið er að tala um það, opna mig. Þeir sem mig þekkja vita líka að ég er ekkert ofboðslega lokuð manneskja.
Enn einu sinni endurtek ég.. ÉG vil að fólk hafi val um að skoða myndirnar, ef að albúmin eru læst þá þarf viðkomandi að biðja um aðgangsorðið. Það gerist með þeim hætti að: Það sendist e-mail til mín. Það er ég sem þarf að gefa viðkomandi upp lykilorðið. Kannski er ég ekki við tölvuna, ég er þar ekki alveg alltaf sjáðu til ;) Ég merkti albúmin EKKI fyrir viðkvæma því að ég vil að þeir sem vilja geti skoðað hinir þurfa þess ekki og geta sleppt því, enda er þetta merkt. Einnig vil ég benda á það að þrátt fyrir að lykilorðið standi fyrir aftan nafnið hennar þá hef ég samt fengið 59 beiðnir um lykilorðið... Hvernig væri pósthólfið mitt útlítandi ef að það væri ekki þar*svitn*
En annars.. eigiði góða viku ÉG elska mánudaga :D

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim