Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

Svo þreytt

Guð hvað maður getur verið vibba þreyttur.. Ég er ekki svefnþreytt, ég er þreytt á því að þurfa að standa á mínu. Hvað er málið með fólk.. Ég hef ekkert heyrt í stjórnendum barnalands.is síðan ég sendi þeim símanúmerið mitt í mail í gær. Ég nenni bara engan veginn að standa í e-mail sambandi við fólk sem að les ekki það sem ég skrifa. Mér finnst það bara með eindæmum tilgangslaust.

Það kom umræða á barnalandi áðan, þar var beðið um númerin á síðum barna barnalandsfólks, henni var hent út off course.. Það kom önnur henni var líka hent út. Hvers vegna eru þau með opnar síður þá yfir höfuð? Vita þau ekki að það er hægt að loka þeim? Vangaveltu ójá og DJÚPAR pælingar...

Annars var þetta fínn dagur. Kallinn minn var að vinna á "Hamborgarabúllu Tómasar" fyrri partinn, tómar reddingar fyrir fólk sem hefur efni á því að láta aðra gera hlutina fyrir sig ;)

Við fengum upphringingu á meðan.. frá DV. Þau komu og tóku myndir af okkur Kristófer, hvar eru kallarnir manns þegar maður þarf á þeim að halda... Þau ætla að birta umfjöllun um þetta hitamál. Þau ætla líka *vonandi* að birta myndir af Perlunni minni. Þau fara greinilega ekki eftir sömu siðareglum og barnaland.is..

Svo fór ég og sjoppaði fyrir systu :) Einhverja reipisflækju sem kostaði sko hvorki meira né minna en 15.000.. Þetta hesta fólk er nú pínu gaga.

Ég veit varla hvað ég á að segja.. ég er voða tóm, m.a. vegna þess að mér finnst barnaland.is vera með eindæmum afskiptalítið, kannski skiptir það þau engu máli hvað öðrum finnst. ææi ég veit ekki. Þeim er allaveganna sléttsama um tilfinningar annarra.. Það sést best á því að þau "voga sér" að votta samúð sína þegar þau eru búin að gera mann sótöskuilla! Enda er ég þeim ennþá reið. Og verð það. OG Ég ætla ekki að láta kyrrt liggja, ég ætla ekki heldur að ana útí neitt, ég er ekki að ráðast á neinn. Ég er í vörn. En er kannski sókn besta vörnin? það er spurning..

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim