Hugleiðingar móður
já mikið væri nú lífið gott ef við gætum stjórnað því sjálf, allt gengi bara snurðulaust fyrir sig. Engin ótímabær andlát, engin ótímabær veikindi, engin ótímabær slys. Þá myndum við sennilega bara skera okkur í puttan þegar okkur langaði í frí í vinnunni, er það ekki?
Hvernig getur fólk sagt að myndir sem að er ekki búið að skoða séu ekki hæfar til birtingar? Mér er spurn? Hvers metur fólk tilfinningar annarra þegar það traðkar á þeim á skítugum skónnum?
Ef ég hefði val þá myndi Perla Dís vera lifandi ekki dáinn, það val hef ég ekki. Ef ég ætti eina ósk þá væri það að hún væri á lífi. Ég er ekki að þröngva mér inná einn eða neinn, en ég vil að þeir sem vilja það geti skoðað síðuna hennar án þess að hafa lykilorð. og hana nú!
Eins finnst mér mjög skrítið ef að barnalandsfólki er stætt á því að ritskoða myndirnar mínar samkvæmt einhverjum almennum siðareglum. Þá er ég ATH að tala um sjálfan mig sem greiðanda áskriftar af vefnum, sem þar að auki er að verða búin með myndaplássið sitt og þarf þar að leiðandi að fara að kaupa sér auka pláss. well þar fer allaveganna smá peningur í súgin.
Þetta er yfirborðskennt peningaplott. Þau tapa auglýsingatekjum vegna þess að 20.000 manns verður lokaður frá síðunni. Mér finnst það afskaplega leim hjá skólayfirvöldum það er ekki það. EN barnalandsfólk gat þá bara bent þeim á sína eigin notkunarskilmála... en í þeim stendur að barnaland.is taki enga ábyrgð á líkamlegu eða ANDLEGU tjóni sem fólk verður við vegna meiðyrða (reyndar stendur meiðyrðinga hjá þeim hvort er réttara) eða annarar notkunar á vefnum.
Svo eyða þau út öllu sem sagt er á móti þeim, maður hafði ekki undan í gær við að fylgjast með umræðunum fljúga út..
ég er pist mjög pist... og ég held að það sé skiljanlegt

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim