O jæja
Kristófer kom heim áðan. Ekkert smá gott að fá hann heim. Hann er eins og ferskur andvari.
Annars var gærdagurinn "töff", við jarðsettum Perluna okkar. Það var lítil athöfn í Fossvogskapellu og svo fengum við að fara með henni á rúntin. Við fórum með hana alla leið á selfoss, þar sem hún var jarðsett í gröfina hjá Brynhildi systir. Það er voða gott að vita af henni þar... þótt að það hafi verið sárt, óendanlega sárt að skilja við hana. Mig langar svo að hafa hana hjá mér.
Held að heimilið hafi sjaldan verið jafn hreint og skipulagt... ég sæki í að þrífa til að dreifa huganum... það er sko ekkert slæmt.. og í raun var það orðið mjög þarft!!!
Annars höfum við það bara fínt. Við fórum í búðina í dag, versluðum til heimilisins í Bónus, svo keypti ég nýjan kodda handa Kristófer í rúmfó og nýja hvítlauksolíukrukku í IKEA. Sá geggjað flott rúm í IKEA, nei ekki handa Kristófer heldur handa okkur!! geggjað svona járngrind... hehe Langar að vinna í lottoinu núna
en læt þetta duga í bili... þarf að æfa mig í að skrifa svona blogg... og já góðir hlutir gerast hægt!!!
kv Harpa

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim