Í sveitinni..
Við mæðgini ákváðum að skella okkur í sveitinna í gær. Komum við á leiðinni í Blómakúnst og versluðum þar eina stóra bleika rós. Hana settum við á leiðið hjá frænkunum, Brynhildi og Perlu Dís. Það var einkennilegt að koma að leiðinu aftur eftir jarðarförina. En samt gott. Veit ekki hvernig ég á að útskýra það almennilega.. Einhver svona staðfesting, maður er einhvern vegin hálfur í draumi ennþá. Kristófer varð ástfangin.. hann sá gröfu sem var að taka gröf.. ég varð því að bera hann organdi og gargandi útúr garðinum.. Herra þrjóskur sko!
Þeir eru náttúrulega einstakir þessir karlmenn í fjölskyldunni. Það sást ekki í gólfið inni hjá honum bróður mínum fyrir óhreinu taui, og í heildina þvoðum við Kristófer 6 þvottavélar frá því um 4 í gær og þar til 6 í dag GERI AÐRIR BETUR! Því miður er pabbi ekki svo heppin að eiga þurrkara, svo að það var gamla góða leiðin.. allt hengt upp!! Kristófer var voða duglegur við að hjálpa mér, setti í vélina á meðan ég sorteraði þvottinn, og rétti mér svo blautt tau og klemmur, ekkert smá vel upp alin :) Hann var reyndar líka stundum aðeins of duglegur.. sumt af þvottinum var þvegið 2x, ein vélin var þvegin 3x, ásamt því að hann hélt uppþvottavélinni heitri líka.
Pabbi ákvað að hafa saltað hrosskjöt í matinn í gær, eitthvað sem að okkur mæðgininum finnst rosagott. Kristófer fékkst ekki til að smakka það og því voru grunsemdir mínar frá því fyrr um daginn þegar að hann vildi ekki vera úti að leika sér endurvaktar og svo staðfestar fljótlega eftir mat þegar hann rauk upp í hita greyið. Hann dormaði bara í fanginu á afa sínum og mér til skiptis og á endanum dreif ég hann upp í rúm, gaf honum stíl og kúrði með honum í smá stund. Hann lá og mókti og eftir 20 mínútur kíkti ég á hann aftur, þá mætti ég honum bara í hurðinni.. minn orðin svaka hress :) Hann vakti svo í 2 og 1/2 tíma í viðbót eða til 22.30. Ég hélt ég fengi því að sofa aðeins út.. nei hann vaknaði í nótt og hélt 1 manns party, reyndi eins og hann gat að vekja mig, sko! Eða.. ég var nú varla sofandi, frekar að reyna að sofna og fá hann með því til að gera hið sama!
Hann var svo ágætlega hress í dag.. samt heitur svo að við ákváðum bara að drífa okkur í bæinn, ekkert gaman að vera í sveitinni og fá ekkert að fara út. Þessi elska mín sofnaði svo á leiðinni og svaf af sér innburð með tilheyrandi hurðaopnunum og lokunum og uppírúmsettningu með afklæðningu og yfirbreiðslu. Hann hóstar mun minna núna svo ég vona að honum batni bara, vonandi fær hann ekki lungabólguna eins og amma sín sem má ekkert vinna næstu 10 daga!
Annars var ég voða dugleg ísveitinni.. þvoði sem sem sé þessar 6 vélar, ryksugaði "sveitamegin" og skrúbbaði bæði wc-in, vaskana, baðkarið, sturtuna og allt eldhúsið :) Þvílíkt öflug í þrifunum sko :)
Er samt voða glöð að vera komin heim.. hringdi í Bigga minn í dag og sagðist koma heim í dag.. hann bara ooo það er allt í drasli! Ég bara ha? (ekki eins og ég hafi verið lengi í burtu rúman sólarhring..) Já ég gleymdi kexpakkanum á stofuborðinu og vatnskönnunni á náttborðinu (hann fór sko að djamma) og svo gleymdi ég að setja í þurrkaran! Þvílíkt sem hann er orðinn vel upp alin hjá mér þessi elska :)
En læt þetta duga í bili, er komin með skrifkrampa ;)

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim