Það er naumast að maður er duglegur.
Dagurinn í dag. Það var nú bara ágætisfjör á heimilinu í dag. Við mæðginin drifum okkur á fætur um 11 (já ég veit hann sonur minn er gott barn) Enda fór hann seint að sofa kvöldið áður, eða um 22.30. Við fengum okkur morgunverð, hann fékk nýja bleiu og við klæddum okkur. Þegar okkur hafði "loksins" tekist að draga Bigga framúr, bakaði í ég vatsdeigsbollur, Kristófer veitti mér mikla hjálp... hann potaði í bollurnar og fannst mamma sín bara frekar fyndin, sem og að hún er að sjálfsögðu!!! Barnið hefur SVO rétt fyrir sér :)
Við fengum svo gesti, Didda og Dista amma Bigga komu og með hana Jasmín með sér. Svo kom Hafrún og Benedikt Bent, Maríanna móðursystir, Jón, Ingi, Brynja og Maja pæja. Þannig að það var bara stuð :) Svo kom Linda tengdó og Ívar hennar. Þau fóru rúmlega 7 í kvöld og þá var kvöldmatur ;)
Kristófer var síðan algjör ormur... kúkaði í sturtuna... og var tregur í rúmið. Þetta hófst samt allt og guð hvað það er yndislegt að hafa hann aftur heima. Þvílíkt sem hann er mikið krútt þessi elska :) Hann var reyndar aðeins að smakka á Bent.. við sáum blautt tannafar á peysunni hans... hvenær vex hann uppúr þessum endalausu bitum??? Anyone???
Svo talaði ég heillengi við mútter í síman. Það getur nú verið fínt að tala við hana :)
Ég er komin með skrilljón hugmyndir að herberginu og baðinu... spurning hvort að þær séu framkvæmanlegar? Smiðurinn Trausti fær að dæma :)
Núna er þetta á framkvæmdalistanum:
1. Flísaleggja gólf og veggi í eldhúsinu.
2. Borðplata... Uppþvottavél, tenging og nýjan vask takk!!
3. Laga lakk á Eldhúsinnréttingu.
4. Gera innra herbergið að stöku herbergi. Opna hurðaopið, loka hinu megin, leggja parket og setja upp skáp.
5. Baðherbergið.... úff þá get ég skrifaði í marga daga!!! Flísar nr 1,2 og 3. Gólf + veggir. Ráðandi línu á miðjan vegg, hlutlausar flísar annars á veggina og djarfari á gólfið. Hlaðið baðkar... veit ekki hvort að sá draumur rætist :( Nýja skápa innréttingu með stórum spegli og nýjum vaski, upphengt wc, og svo "þvotthúsinnrétting" núna er pælingin að hafa mjóan skáp vinstra megin, þar sem væru útdraganlegar hillur, svo þvottvélina, helst að hafa hana á palli svo að balansið sé rétt, fyrir ofan hana kemur þurrkarinn helst á sér hillu og þar "mætti" nú alveg vera útdraganleg hilla... svona til að taka þvottinn úr þurrkaranum og brjóta saman á borðinu sem kemur hægra megin. undir því verða 2 útdraganlegar óhreinatauskörfur og fyrir ofan hillur t.d. fyrir bleiur :)
úff það er alveg spurning um að fara að spara.... Þetta er nú samt alveg 2 ára plan, vonandi klárast liðir 1,2,3 og 4 fyrir haustið... ætla að reyna að gera eitthvað með hjálp "litla hjálparans" míns í þessu 3 mánaða orlofi sem ég fæ. Svona fyrir utan að við ætlum að vera góð við hvort annað.
Læt þetta duga í bili. Sálin er í góðu lagi í dag, allaveganna enn þá

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim