meiri pælingar.
ég ætla að byrja á að gera smá copy/paste. Þetta eru eins og flestir geta giskað á email milli mín og frú Sigríðar barnalands einræðisherra:
Nei ég er í síma xxxxxxx.
ég er að borga fyrir þessa síðu. Ég vil hafa hana opna. Ef það er ekki hægt þá vil ég hafa hana læst en að lykilorðið standi fyrir aftan nafnið hennar. Mér er nokk sama hvað er í boði.
kv Harpa
----- Original Message -----
From: Barnaland
To: 'Harpa'
Sent: Thursday, March 04, 2004 7:37 PM
Subject: RE: Vegna síðu
Þessi valkostur sem þú nefnir er ekki í boði. Við erum að bjóða þér að hafa síðuna alveg opna en læsa albúminu. þú mátt ef þú villt hafa hana alveg læsta án þess að birta lykilorðið.
Er þetta ekki það sem þú vildir? Að hafa hana opna en hafa albúmin læst fyrir viðkvæmar sálir.
Kv
Barnaland
--------------------------------------------------------------------------------
From: Harpa [mailto:harps@strik.is]
Sent: 4. mars 2004 20:28
To: Barnaland
Subject: Re: Vegna síðu
KANNTU EKKI AÐ LESA? LESTU SVARIÐ SEM ÉG SENDI YKKUR AFTUR!!
Hér er mitt svar.
" Ég ætla að halda síðunni eins og hún er annað hvort læstri með lykilorðinu fyrir aftan eða alveg opinni. Þannig er það bara. Fólk hefur þá það val að slá inn lykilorðið eða ekki OG ef þið farið eitthvað að vesenast með puttana í þetta þá kæri ég ykkur hiklaust!"
Ef þið þurfið einhverjar útskýringar á þessu þá endilega hafið samband.
ég var einnig að fá áframsent e-mail frá einni á barnalandi. þar stendur að þið séuð að reyna að komast í samband við aðstandendur en þeir ekki svarað. Hvað í andskotanum á það að þýða að ljúga síðan uppá mann?
Og hvaða siða reglur eru þetta? Einhverjar svipaðar og nýju barnalandsreglurnar?
kv Harpa ennþá öskuill útí ykkur ekki vegna þess að Perla Dís dó.
----- Original Message -----
From: Barnaland
To: 'Harpa'
Sent: Thursday, March 04, 2004 7:05 PM
Subject: RE: Vegna síðu
Ertu sem sagt samþykk því að læsa albúminu með viðkvæmustu myndunum en hafa síðuna sjálfa opna?
--------------------------------------------------------------------------------
From: Harpa [mailto:harps@strik.is]
Sent: 4. mars 2004 20:04
To: Barnaland
Subject: Re: Vegna síðu
Ég er búin að svar því.
----- Original Message -----
From: Barnaland
To: 'Harpa'
Sent: Thursday, March 04, 2004 7:03 PM
Subject: RE: Vegna síðu
Ertu búin að sjá nýjasta meilið sem við sendum þér?
Til að leiðrétta það sem þú þykist vita, við fórum ekki sjálf með þetta mál í fjölmiðlana heldur hringdi Kristófer Helgason í mig vegna pósts sem hann hafði fengið. Þú getur bara kannað það sjálf.
Endilega láttu okkur vita hvað þér finnst um nýjustu hugmyndina sem við sendum þér.
Kveðja
SG
--------------------------------------------------------------------------------
From: Harpa [mailto:harps@strik.is]
Sent: 4. mars 2004 19:58
To: Barnaland
Subject: Re: Vegna síðu
Já ég veit vel hvers vegna þið fóruð strax í fjölmiðlana, svo að þið fengjuð ekki á ykkur illt orð sem þið þyrftuð að svara fyrir, til að vera á undan. Og ekki reyna að segja mér annað. Ég set þetta upp sem persónulega árás á mig, barnið mitt og sorg mína og míns manns. Við erum bæði svo ill yfir þessari framkomu að það hálfa væri nóg.
Mér er skít sama um alla þín helvítis sálfræði titla. ég er ekki að vinna úr sorginni með reiði. ÉG ER REIÐ ÚTÍ YKKUR. Þó að svona einræðisherra/frú eins og þið eruð vitið náttúrulega allt betur um það. Lestu bara það sem stendur á heimasíðu Perlu Dísar, er mikil reiði þar ónei.
Mér finnst ykkar hegðun ósæmileg. Það að senda út hótunar mail í fyrsta lagi. Að standa síðan við hótunina löngu fyrir "gjaldaga" þegar ég er búin að fara í útvarpið og segja þar frá nafninu svo að fólk gæti skoðað síðuna. Nei ég er ekki að kaupa þessa hegðun. Ég er búin að senda ykkur 4 mail ég hef fengið svar við 2 þessu og því 1. Það er hlutur sem ég sætti mig ekki við. Ég sætti mig ekki við að horfa á fleirri fleirri innlegg hverfa af umræðunni því að ÞIÐ vilduð ekki fá þau í loftið.
Ég kæri mig ekkert um ykkar samúð, þið megið hafa hana upp á punt heima hjá ykkur. Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Ég passa mig og mína.
Ég ætla að halda síðunni eins og hún er annað hvort læstri með lykilorðinu fyrir aftan eða alveg opinni. Þannig er það bara. Fólk hefur þá það val að slá inn lykilorðið eða ekki OG ef þið farið eitthvað að vesenast með puttana í þetta þá kæri ég ykkur hiklaust!
kv Harpa
----- Original Meage -----
From: Barnaland
To: 'Harpa'
Sent: Thursday, March 04, 2004 6:16 PM
Subject: RE: Vegna síðu
Kæra Harpa
Held þú vitir sjálf hvers vegna við biðum ekki lengur... og við fögnum allri umræðu um þetta mál í fjölmiðlum. Þú setur þetta upp sem persónu árás á okkur. Sem okkur þykir miður. Vonandi tekst þér að vinna þig út úr sorginni öðruvísi en með þessari reiði. Þú hefur alla okkar samúð. Og megi guð geyma þig og þína.
Kveðja
Barnaland
--------------------------------------------------------------------------------
From: Harpa [mailto:harps@strik.is]
Sent: 4. mars 2004 19:03
To: Barnaland
Subject: Re: Vegna síðu Perlu
----FARIÐ ÞIÐ RASS OG R'OFU FÍFLIN YKKAR!!!
Með ekkert álit á ykkur lengur
Harpa
p.s. Hvað varð um að "Ef síðunni verður ekki læst á næstu dögum neyðumst við til að læsa henni en þá munum við senda ykkur lykilorðið svo þið getið haft aðgang að síðunni." Eru nýjar "reglur" að innan við sólarhringur sé "á næstu dögum" Þið áttuð sennilega ekki von á því að ég væri í útvarpið var það nokkuð? Þið eruð fífl
- Original Message -----
From: Barnaland
To: 'Harpa'
Sent: Thursday, March 04, 2004 5:36 PM
Subject: RE: Vegna síðu Perlu
Sæl Harpa,
Hér er lykilorðið þitt fyrir síðuna hennar Perlu Dísar: gh45se
Með vinsemd og kveðjum frá barnalandi
Þetta er allt sem hefur farið okkar á milli, í dag. Ég var reyndar afskaplega reið. og er það ennþá. Og uppgefin. Eins og sést þá gaf ég frú Sigríði upp símanr mitt. Hún hefur reyndar ekki ennþá látið í sér heyra. En þann póst sendi ég kl 20.00 í kvöld svona ca. Ég bíð spennt, nenni bara alls ekki að standa í þessum skrifum við hana þar sem að hún virðist ekki lesa nema part af því sem ég skrifa.
Hún vill líka meina mér að gefa lykilorðið upp (sjá póst) opinberlega. Afhverju? Það er ekki ég sem vil hafa síðuna lokaða og því það er ég sem stjórna umferðinni á síðunna. Ég hlýt að ráða því hvort ég gefi það upp með e-mail sem böggar mig geðveikt eða með því að setja lykilorðið fyrir aftan nafnið hennar.
Bara í dag er ég búin að fá 20 óskir um lykilorðið. Samt er það inní undirskriftinni minni á barnalandi og líka á eftir nafninu hennar Perlu minnar. Ég er alveg ofboðslega reið út í þessa konu. Hún benti mér líka á það að reyna að vinna úr sorginni með öðrum ráðum en reiðinni. Reiðin mín tengist bara ekkert því að Perla Dís sé dáinn. Reiði mín beinist eingöngu að stjórnendum barnalands.is. Reiðin er sprottinn af frekjunni og yfirgangum sem þau sýna. Samanber það að þau tóku sig nú til í gærkveldi og ritskoðuðu heilan helling af innleggjum. Svona framkoma finnst mér að eigi ekki að líðast. Við búum í frjálsu landi sem að þýðir það að við eigum að hafa val. Val um það t.d. hvort að við viljum hafa síðurnar okkar opnar eða lokaðar. Með því að hafa síðuna opna og/eða lykilorðið þar fyrir aftan er ég að gefa fólki val um að fá að skoða hana. Það eina sem er "ógeðslegt" við síðuna er það að barnið sem á hana er dáið. Myndirnar af því eru af því látnu því að þannig fæddist Perlan mín.
Eins skrifar frú Sigríður að þau hafi opnað barnaland.is vegna veikinda sonar síns. Haldið þið að ekki væri þá síða fyrir hann hefði hann dáið? Hún væri sennilega með myndum af honum lifandi því að hann var jú lifandi áður en hann veiktist. Það var eitthvað sem að Perlan mín fékk ekki.
Hvað á maður að gera við svona fólk? Fólk sem að ekki les e-mail sem það samt svarar? Ég kann því miður engin ráð til að leita að frúnni í danaveldi. Ég skil bara ekki dönsku hvað þá að ég gæti nú leitað í danskri símaskrá... Nú hefði verið gott að hafa hlustað betur í gaggó og menntó.
Ef ég gæti nú breytt einhverju þá myndi ég vilja hana Perlu mína lifandi, þá væri ég ekki hérna að blogga þessa steypu, heldur væri ég að gefa brjóst, þvo bleiur, rugga henni, dáðst að henni. Stelpunni sem ég hélt að ég myndi aldrei eignast en ég fékk.. en fékk ekki að njóta. Guð hvað þetta er fáranlega erfitt líf stundum.
Hún Sjöfn mín úr Fannborginni hringdi í mig í dag. Hún hefur misst barn. Reyndar fullorðið barn en mér er sama það var ofboðslega gott að tala við hana. Hún sagði mér margt gott. Alltaf gott að heyra í þessum elskum ég verð að fara að koma mér í heimsókn til þeirra.. þessi morgun leti er að drepa mig!
Kannski maður ætti þá að fara að sofa? Það má reyna það, enda er þetta orðið allt of langt í bili.

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim