Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Góða veðrið í dag...

...var sko vel nýtt. Við fórum í sund litla fjölskyldan og þeir Hjörtur og Örvar komu með Hjörtur með Gerðu með sér. KD fannst nú ekki lítið gaman, mamma hans er ekki búin að vera nógu dugleg við að fara í sund með hann og ekki fer hann sjálfur... Eftir sundið brunuðum við heim og elduðum rosagóða steik :P Folaldasteik. namm. Fyrir sundferðina komu þær skvísur Kristrún Lena og Elín í heimsókn og það var nú ekki lítið stuð, hann sonur minn er nú alltaf jafnsætur í sér og var mjög duglegur við að "troða" snuddunni uppí hana þegar hún fór að gráta... ýkt góður ;) jeje

Annars gaf sæti maðurinn minn mér gsm-síma í dag ;) ógó góður sko :P

lítið að frétta annað...síjú

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim