Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

laugardagur

† Afi minn †

Hann afi minn kvaddi þennan heim snemma í kvöld. Hann var 91 árs. Ég er ofboðslega meyr. Hans tími var kominn en það er erfitt að sjá á eftir svona yndislegu fólki þótt við höfum notið nærveru þeirra, gæsku, umhyggju, ástúðar og fjölskylduástar, ótrúlega lengi. Afi minn var fyrirmynd í alla staði, ótrúlega hress og brosandi alltaf, alltaf til staðar og studdi við bakið á sínu fólki. Ég man ekki eftir því að hafa séð hann skipta skapi, þó bjó ég í næsta húsi við hann mín fyrstu 20 ár (og það eitt að búa við hliðina á okkur systrum var alveg til að hvetja til skapskiptinga).

Við hittum áðan í gamla húsinu, húsinu sem afi byggði sjálfur, húsið hafði elst um mörg ár á þessum 3 tímum sem það hafði ekki haft ábúanda. Sál íbúans hefur greinilega áhrif á húsið. Skyndilega fundum við systurnar á göngu um efri hæðina aftur "ömmulykt". Tengdist meira minningunum sem flæddu en einhverju yfirnáttúrulegu.

Ég sakna hans ótrúlega mikið.

4 comments:

At sun. okt. 28, 10:58:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Ég samhryggist þér elsku Harpa mín, en hafðu í huga hvað þú fékkst að hafa hann lengi og njóttu góðu minninganna

 
At mán. okt. 29, 02:25:00 e.h. GMT+0, Blogger Vala tjáði sig...

Samhryggist þér Harpa mín. Það er alltaf erfitt að missa þá sem að manni þykir vænt um, alveg sama hvað þeir eru gamlir. Knúst í kotið
Kveðja Vala

 
At þri. okt. 30, 08:18:00 f.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Innilegar samúðarkveðjur elsku Harpa. Tek undir með Völu, þetta er alltaf svo skrambi erfitt alveg sama hvað hver segir um undirbúning, aldur, og gang lífsins þá er þetta erfitt! En það eru dásamleg forréttindi að hafa fengið að alast upp með ömmu sinni og afa. Maður býr að því alla ævi held ég...
Risa knús til ykkar, Elsa

 
At fim. nóv. 08, 06:21:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Ég samhryggist þér innilega Harpa mín. Það er alltaf erfitt að kveðja þá sem manni þykir vænt um. Sama hve gamall sá einstaklingur er. Langafi varð 104 ára en hann var samt erfitt að kveðja.
Berglind

 

Skrifa ummæli

<< Heim