Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

mánudagur

Að ná áttum

Er að ná áttum í augnablikinu, vorum að taka baðherbergið í gegn. Ótrúlegur munur að vera laus við þvottavélina, þurrkaran og allt baðherbergisdótið úr stofunni! Ennþá er svefnherbergið undirlagt af dóti, aðallega hreinu taui samt og smá baðherbergisdót ennþá þar.

Baðherbergið mitt er yndislegt núna. Með BAÐKARI fyrir það fyrsta, svo er það svo plein og fínt eitthvað, manni verður ekki bumbult við að horfa á samspil gömlu dúkana og flísanna! Kem með fyrir og eftir myndir þegar ég verð búin með final tötsið, á ennþá eftir að hreinsa ofninn almennilega og gera hann fínan. Svona smotterýs hlutir eftir sem sé.

Fór síðan áðan út að borða á Lækjarbrekku með pabba, Elínu og Einari. Fengum ógurlega góðan mat, þríréttað lamb, meira lamb og súkkulaði. Geggjað alveg hreint. Er óeðlilega södd núna. Tilefnið er að Brynhildur systir hefði orðið 28 ára í dag. Í nóvember verða 10 ár frá því að hún dó. Tíminn líður ótrúlega hratt!

Annars hafa gaurarnir mínir það ógurlega gott. Darrinn stækkar og þroskast hratt. Hann er mjög sáttur með nýja baðkarið okkar. Lá í baði í tæpa klukkustund fyrr í kvöld. Alexander er með 2 stórar og vel nýtanlegar tennur, hann er farinn að fá að borða með okkur og finnst það ekki leiðinlegt. Sérstaklega finnst honum gott að fá eplabát að naga, kaldan! Hann stækkar hratt og er svakalega duglegur. Hann er ekki farinn að skríða ennþá en honum finnst lang skemmtilegast að fá að standa! Það styttist í að hann fari af stað, hann fer auðveldlega upp á 4 fætur og fer um á hálfgerðu flugskriði. Fer upp á fjóra og skutlar sér síðan áfram, aftur og aftur. 'ogurlegt stuð!

Nóg blogg í bili, Harpa

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim