Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

Ferðasangan eftirmáli.

Nún eru við búin að vera heima í 2 daga og þvottvélin hefur ekki stoppað nema rétt yfir blánóttina. Það þurfti líka að þrífa helling af kattahárum því 9 stk kettir skilja eftir sig smá svoleiðis.

Þetta var æðisleg ferð í alla staði, þrátt fyrir að henni lyki heldur snögglega. Mæli eindregið með því að fólk leggi Ísland að fótum sér og skoði sig um. Við eigum eftir að heimsækja marga staði og marga staði ætlum við að heimsækja aftur.

Það kom mér vissulega á óvart hve auðvelt það var að ferðast með strákormana mína. Við reyndum í lengstu lög að keyra frekar fyrripart dags og miða það út frá lúrunum hans Alexanders. Það gekk ótrúlega vel og það var alveg frábært að þvælast um með brjóstabarn. Maturinn var tilbúinn hvar og hvenær sem var. Darrinn var líka ótrúlega þægilegur miðað við orkuna sem hann hefur, hann fékk sitt landakort og spáði mikið í það hvar við værum, hverju sinni. Hann notaði kíkinn sinn óspart og sá marga forvitnilega hluti. Hann fékk líka alveg að blása út orkunni, víðast hvar sem við stoppuðum, með hoppi, hlaupum og klifri.

Fyrir ferðina bjóst ég alveg eins við því að við myndum koma heim eftir 2-3 daga, jafnvel að við færum ekkert lengra en á ættarmótið. Raunin varð önnur og við vorum í 16 daga eða 15 nætur í burtu. Mér tókst líka að nota taubleiurnar alveg fyrstu 8 daganna, að kvöldi 8 dags vorum við við það að verða bleiulaus og ég skipti í pappírinn sem var notaður næstu 6 dagana, vega þvottaðstöðu leysis og þurrksleysis (ég reyndi að þvo í Ásbyrgi en þvottavélin var greinilega of flókin fyrir mig...) og guð hvað ég var fegin að komast í tauið aftur. Mér fannst hinar bara illalyktandi og ógeðslegar.... íjú!

Svo er bara spurning hvort einhver lesi þessa ferðasögu alla?

p.s. byrjið á neðstu færslunni, þið getið líka séð færslurnar allar hérna til hliðar undir fyrri póstz :)

2 comments:

At fös. ágú. 03, 12:13:00 e.h. GMT+0, Blogger Vala tjáði sig...

Las alla söguna og skoðaði allar myndirnar :) Greinilega mjög skemmtilegt hjá ykkur og það er bara alveg frábært að þvælast um Ísland. Við Unnar erum búin að þvælast þetta allt saman og ætlum að gera það fljótlega aftur. Höfum líka lennt í allskonar bílaerfiðleikum og urðum alltaf jafn hissa á því hvað allir eru almennilegir út á landi, allir boðnir og búnir að aðstoða mann :)

 
At lau. ágú. 04, 01:49:00 e.h. GMT+0, Anonymous Nafnlaus tjáði sig...

Ég var að klára að lesa ferðasöguna, æðisleg ferð hjá ykkur! Flottar myndir líka. Þetta hefur án efa verið mikið ævintýri fyrir ykkur öll.

 

Skrifa ummæli

<< Heim