Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

miðvikudagur

Langferðasagan, framhald.

Við mættum í Hnífsdalinn til Gerðar og Kristjáns og tókum ekki eina einustu mynd! Eins og þau eru nú sæt og skemmtileg! Strákarnir þeirra eru sitthvoru meginn við Darra og þeir smullu saman allir 3 eins og þeir hefðu aldrei gert annað en að leika sér saman! Við gistum hjá þeim í 2 nætur sem var alveg frábært í alla staði, ég fékk að þvo smá þvott osfrv. Við elduðum m.a. læri og drukkum smá rauðvín, spiluðum Trival og ég sver að barnið mitt sást varla nema til að borða og fara á wc. Mig langar að flytja í Hnífsdal.

Fimmtudaginn 19. júlí lögðum við svo af stað úr Hnífsdalnum, með haug af hreinu taui og söknuð í hjarta og huga, sérstaklega Darrinn sem talar ennþá um vini sína sem eiga hjólabrettinn! Við ókum sem leið lá, nú yfir norðurhelming vestfjarðanna.

Hér má sjá Litla Bæ í Skötufirði, en þar stoppuðum við örskamma stund, rétt til að skoða, en það var farið að blása og kólna, svo stoppið varð stutt.


Sæti maðurinn að keyra!

Og sæta konan!


Stoppuðum svo í Heydal, fengum okkur kaffi og heimabakaðar geggjaðar brauðbollur. Alexander fékk að prófa þennan fína stól og fannst forvitnilegt með afbrigðum.


Þetta er gömul skemma sem búið er að þilja með þakkpappa og svo þverskornum rekavið, ferlega flott og ekta :þ ljóskrónan er líka bara sæt!


Þarna er Darri að ræða við Kobba páfagauk, hann gerði ýmsar kúnstir, lék símhringingar, kallaði á strákana, blístraði, heilsaði og margt fleira. Mig var farið að dauðlanga í fugl og Darra fannst hann svo fyndinn!


Stundum er gott að leggja sig í bílnum, og sumir sofa í skrítnari stellingum en aðrir, með krosslagða fætur og alles!


Sumum finnst líka ekkert voðalega gaman í bíl....


Við enduðum svo í þoku á Drangsnesinu og eftir langan dag í akstri ákváðum við að leigja okkur lítin bústað fyrir ofan bæinn. Þar fórum við í sturtu, elduðum okkur mat, spiluðum snáka og stigaspil og höfðum það huggulegt. Við vöknuðum svo í blíðu, smá roki og drifum okkur af stað, föstudaginn 20. júlí.

0 comments:

Skrifa ummæli

<< Heim