*bööööö*
Hef voða lítið að segja eitthvað, kenni brjóstaþokunni um það, man alltaf eitthvað skemmtó þegar ég er að gefa eða útí í gönguferð, man síðan ekkert þegar ég ætla að reyna að rifja það upp.
Annars gengur lífið svona ljómandi vel. Kristófer er heimsins besti stóri bróðir sem finnst svakalega gaman að sýna Alexander dót, knúsa hann og rugga vagninum. Hann er svo stoltur að hann þarf að kynna hann fyrir allt og öllum sem við hittum, ja eða bara sem við mætum á götu. Alexander stækkar og dafnar, hlær, skríkir og brosir, sefur eins og engill þess á milli og rembist þessa daganna við að ná einhverri samhæfingu milli auga og handar, mjög fyndið að sjá hann stara stífum augum á þær og reyna að hreyfa þær markvisst.
Og já, rétt upp hönd sem langar í kisu, við eigum nokkra kettlinga á lausu og þeim fer fjölgandi...
adios í sumarskapi Harpa

0 comments:
Skrifa ummæli
<< Heim