Harpa skarpa bullar...

Þögn er betri en þarflaus ræða

þriðjudagur

Gamaldags húsmóðirinn ég!

Uppgötvaði hæfileika sem legið hefur í dvala í u.þ.b. 14 ÁR! Að prjóna. Man ekki eftir því að hafa prjónað eða heklað síðan í gaggó! Ekki klárað neitt alla veganna, gerði vettlinga í haust en kötturinn tætti annan og hinn fór í suðuþvott... end off story fyrir ullarvettlinga. Þegar Darri var lítill ákvað ég að prjóna peysu og gerði stroffið, gafst síðan upp.

Núna ákvað ég að ég hlyti að geta prjónað ullarbuxur yfir taubleiu. Eftir 3 ferlega misheppnaðar tilraunir tókst það! Síðan þá hef ég verið óstöðvandi, gerði síðbuxur með stroffi, vettlinga og sokka í stíl handa litla stúfnum og er að leggja loka hönd á vettlinga á stóra stubbinn. Á prjónunum eru svo virkilega flott lambhúshetta á þann litla. Manninum mínum finnst verst að ég nenni ekki að prjóna á stórt fólk :þ Ekki ennþá, þarf að byggja upp færni og sérstaklega prjóna-egó!

Svo standa allar plönturnar mínar í blóma, svaka gróska. Bæði ástareldurinn og heimilisfriðurinn m.a.

Uppáhalds búðin mín þessa daganna er Góði Hirðirinn, mæli með því að kíkja þangað og endurnýta annara drasl. Fullt af skemmtilegum bókum t.d. borðbúnaður, leiksföng, húsgögn og bara alla veganna.

Sonur minn er grænn framsóknar maður og setur "eks Bigga Freys stafur", hann á grátt lamb og á loftmikinn frænda, sem er gleðilegt þegar maður á eks Béé blöðrur.

Ég veit ekki hvað ég kýs, það verður ekki Samfylkingin sem reyndi að kaupa atkvæði með rós hér fyrr í kvöld. Ætli ég geri ekki bara úllen dúllen doff. Kallinn er óákveðinn líka, en á sama máli og ég. Ekki samfylkinguna. Einhverjar hugmyndir?

4 comments:

At þri. maí 08, 03:52:00 e.h. GMT+0, Blogger Sigridur Ros tjáði sig...

Ó já, ég er sko með hugmyndir kella mín :)
Held þú vitir hverjar enda er ég víst svo blá í gegn að það hálfa væri nóg.
X-D er málið en ekki kálið mjehjehjehje....ég er búin að kjósa fyrir löngu....nýtt upplifelsi að kjósa svona í útlandinu :)

Hafið það gott kæra fjölskylda.
Knús frá Kanada

 
At mið. maí 09, 10:51:00 f.h. GMT+0, Blogger AJ tjáði sig...

vaff gjé. Klárlega! G!

Ef þú kýst framsókn, verð ég að hætta með þér!

 
At fim. maí 10, 03:00:00 f.h. GMT+0, Blogger Harpa tjáði sig...

Elsku aj, en xI ?

 
At fim. maí 10, 08:23:00 f.h. GMT+0, Blogger Hannarut tjáði sig...

Ég er voða lítið inn í pólítik en gangi þér vel að kjósa rétt :) Voða ertu duglega ð prjóna, ég er ekki dottin inn í þennan gír og hef ég ekki prónaði síðan einmitt í gaggó.
Knús Hanna í DK.

 

Skrifa ummæli

<< Heim